Úthlutun úr Rannsóknasjóði styrkárið 2022
Stjórn Rannsóknasjóðs hefur lokið við úthlutun styrkja til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2022, stærstu úthlutun sjóðsins frá upphafi. Alls bárust 355 gildar umsóknir í Rannsóknasjóð og voru 82 þeirra styrktar eða rúmlega 23% umsókna.
Rannsóknasjóður er leiðandi samkeppnissjóður hér á landi. Sjóðurinn styrkir verkefni á öllum sviðum vísinda, allt frá styrkjum fyrir doktorsnema til öndvegisstyrkja. Öndvegisstyrkir eru veittir til stórra verkefna sem skara fram úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega tengingu. Á síðasta ári hafði sjóðurinn 3.7 milljarða; í ár hafa fjárveitingar til sjóðsins hækkaða í 3.8 milljarða.
Fjöldi nýrra verkefna er sá sami og í fyrra en þá hafði hann aldrei verið meiri eða 82 verkefni; úthlutuð heildarupphæð er sú hæsta frá upphafi. Styrkveitingar til nýrra verkefna nema á þessu ári 1.4 milljarði króna, en þar sem verkefnin eru almennt til þriggja ára verður heildarkostnaður vegna þeirra rúmlega 4 milljarðar króna á árunum 2022-2024. Auk styrkja til nýrra verkefna koma um 2.3 milljarðar til greiðslu á árinu vegna styrkja til eldri verkefna. Rannsóknasjóður mun einnig styrkja þátttöku íslenskra aðila í alþjóðlega samfjármögnuðum verkefnum.
Hér á eftir er yfirlit yfir skiptingu milli styrktegunda. Frekari greiningu er að finna á vef Rannsóknasjóðs. Upphæðir geta breyst við samningagerð og eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.
Öndvegisstyrkir (öll fagráð)
Alls bárust 30 umsóknir um öndvegisstyrki og voru 6 styrktar eða 20% umsókna.
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Sunna Kristín Símonardóttir, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, Ari Klængur Jónsson, Ásdís Aðalbjörg Arnalds | Háskóli Íslands, Félagsvísindasvið | Áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi | 45.685 |
Viggó Þór Marteinsson | MATÍS | IceGut: Áhrif mataræðis á þarmaflóru barna á Íslandi frá meðgöngu til fimm ára aldurs | 49.991 |
Eniko Bali, Halldór Geirsson, Sæmundur Ari Halldórsson | Háskóli Íslands, Raunvísindastofnun | Kvikuhreyfingar á Reykjanesskaga - Samþætt jarðefnafræði- og jarðeðlisfræðirannsókn á eldgosinu við Fagradalsfjall árið 2021 | 42.149 |
Vilmundur G. Guðnason | Hjartavernd | Mat á viðkvæmum æðaskellum | 45.115 |
Steinunn Kristjánsdóttir, James G. Clark | Háskóli Íslands, Hugvísindasvið | Samspil manns og náttúru: Umsvif íslenskra Benediktsklaustra á miðöldum | 49.452 |
Lárus Thorlacius, Valentina Giangreco M. Puletti, Friðrik Freyr Gautason, Zhao-He Watse Sybesma | Háskóli Íslands, Raunvísindastofnun | Skammtasvið og skammtarúm | 48.547 |
Verkefnisstyrkir
Alls barst 171 umsókn um verkefnisstyrki og voru 43 styrktar eða um 25% umsókna.
Raunvísindi og stærðfræði (19%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Elisa Johanna Piispa | Raunvísindastofnun | Segulsviðsstyrkur jarðarinnar við ~ 13 Ma viðsnúningsatburð frá íslensku hrauninu | 13.871 |
Krishna Kumar Damodaran | Raunvísindastofnun | Sértæk valkvæð efnasmíði á handhverfuhreint málm lífrænum efnasamböndum í súpra mólikúlum gelum | 22.425 |
Sigurður Freyr Hafstein | Raunvísindastofnun | Línuleg bestun í stað línulegra fylkjaójafna við stöðugleikarannsóknir á skiptikerfum | 15.912 |
Snorri Þorgeir Ingvarsson | Raunvísindastofnun | Seglun undir áhrifum bjögunar | 18.947 |
Steffen Mischke | Raunvísindastofnun | Áhrif mannvistar á íslensk stöðuvötn | 17.603 |
Þorvaldur Þórðarson | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Rishraði kviku, þróun grunnstæðra gosferla og sprengivirkni í basaltgosum | 11.758 |
Verkfræði og tæknivísindi (30%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Ármann Gylfason | Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild | Hagnýting vindorku við erfiðar veðurfarsaðstæður; hagnýtar tilraunir | 20.820 |
Benedikt Halldórsson | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Ákvörðun staðbundinnar mögnunar jarðskjálftabylgna út frá jarðfræði og landslagi á Íslandi og notkun í nýju skammtíma jarðskjálftahættumati | 20.505 |
Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir | Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild | Aðlögun Ál-rafgreiningarkers að CCS | 21.208 |
Halldór Pálsson | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Gerð straumfræðilíkana í háupplausn af iðustreymi tvífasa flæðis í kerfum tengdum vinnslu jarðhita | 17.012 |
María Óskarsdóttir | Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild | Áhrifavaldar í breytilegum fjöllaga netum | 17.957 |
Tarmo Uustalu | Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild | Computational effects and high-level control | 21.250 |
Náttúru- og umhverfisvísindi (25%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir | Háskóli Íslands - Stofnun Rannsóknasetra | Ytri og innri áhrifaþættir við upphaf fars Atlantshafsþorsks | 21.250 |
Guðrún Gísladóttir | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Mýrar undir álagi: Áhrif áfoks og gjósku á kolefni í röskuðum mýrum | 21.890 |
Jose Augusto Belchior Alves | Háskóli Íslands - Stofnun Rannsóknasetra | Hnattræn ferðalög vaðfugla sem metill á umhverfisbreytingar og tæki til náttúruverndar | 20.510 |
Jukka Heinonen, Brynhildur Davíðsdóttir | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Þróun á sjálfbærum neyslugangi fyrir íslenskt samfélag með atvinnugeira að leiðarljósi | 16.802 |
Julian Mariano Burgos | Hafrannsóknastofnun | Kóralþörungar á kaldsjávarsvæðum: Úrbreiðsla og vistfræði við Ísland | 18.763 |
Skúli Skúlason | Hólaskóli - Háskólinn á Hólum | Þættir sem ákvarða breytileika í lífssögu smárra stofna, bæði í tíma og rúmi | 21.266 |
Stefán Steingrímsson | Hólaskóli - Háskólinn á Hólum | Óðalsatferli, fæðunám og félagskerfi laxfiska í ám: Stöðugleiki og mótun | 18.009 |
Tómas Gunnarsson | Háskóli Íslands - Stofnun Rannsóknasetra | Áhrif landnotkunar og loftslags á varpárangur vaðfugla | 20.746 |
Lífvísindi (33%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Berglind Ósk Einarsdóttir | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Ónæmisforðun sortuæxlisfrumna með lága MITF tjáningu | 19.870 |
Björn Aðalsteinsson | MATÍS | CAZyme-X - Ný sykruensím | 21.250 |
Elvar Örn Viktorsson | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Forklínísk þróun nýrra fenazína með berklahemjandi áhrif | 18.337 |
Guðrún Valdimarsdóttir | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Rakning á ferðalagi fósturfruma í þroskun fylgju og meðgöngueitrun | 19.953 |
Margrét Helga Ögmundsdóttir | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Ísóform sértækt hlutverk sjálfsátsgensins ATG7 í krabbameinum | 22.290 |
Stefán Sigurðsson | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Hlutverk MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins | 21.235 |
Vilhjálmur Svansson, Sigríður Jónsdóttir, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir | Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum | Verndandi og læknandi ónæmismeðferð gegn sumarexemi í hestum | 18.200 |
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa (19%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Berglind Aðalsteinsdóttir, Davíð O. Arnar, Gunnar Þór Gunnarsson | Landspítali-háskólasjúkrahús | Íslenska ofvaxtarhjartavöðvakvilla verkefnið: Rannsókn á arfberum MYBPC3 landnemastökkbreytingarinnar | 18.235 |
Emily A. Holmes, Andri Steinþór Björnsson | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Lóan: Dregið úr áleitnum endurminningum eftir áföll með stuttu inngripi | 19.866 |
Sigurður Yngvi Kristinsson | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Skimun fyrir Waldenström macroglobulinemia og forstigum þess hjá heilli þjóð | 20.417 |
Yvonne Höller | Háskólinn á Akureyri | Áhrif umhverfistengdra-, lífeðlisfræðilegra- og hugrænna áhættuþátta á árstíðabundnar lyndissveiflur | 22.954 |
Félagsvísindi og menntavísindi (25%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Árni Gunnar Ásgeirsson, Árni Kristjánsson | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Líkindastýrð sjónræn athygli | 20.820 |
Giti Chandra | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Afnýlenduvæðing æðri menntunar í norrænu samhengi: Umbótamiðuð rannsókn á námsefni við Háskóla Íslands | 17.773 |
Hanna Ragnarsdóttir | Háskóli Íslands - Menntavísindasvið | Tungumálastefna og starfshættir fjölbreyttra fjölskyldna innflytjenda á Íslandi og áhrif þeirra á menntun | 20.007 |
Heiða María Sigurðardóttir | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Kortlagning sjónrænnar hlutaskynjunar: Einstaklingsmunur, raskanir og hæfileikar | 21.060 |
Heiðdís Valdimarsdóttir, Sigríður Björk Þormar | Háskólinn í Reykjavík - Sálfræðideild | Áhrif COVID-19 faraldursins á andlega líðan viðbragðsaðila í neyðarþjónustu | 18.673 |
Ólafur Rastrick | Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið | Aðdráttarafl menningararfs og staðartengsl í borgarlandslagi | 18.635 |
Rannveig Sigríður Sigurvinsdóttir, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir | Háskólinn í Reykjavík - Sálfræðideild | Gagnsemi dómsals í sýndarveruleika til að styðja við þolendur kynferðisofbeldis | 20.600 |
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir | Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið | Lifað með heilalömun | 16.748 |
Hugvísindi og listir (31%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Beeke Stegmann | Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum | Hringrás pappírs: Framleiðsla, frumnotkun og endurnotkun sautjándu aldar pappírs á Íslandi | 16.037 |
Egill Erlendsson | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Þróun seljabúskapar á Íslandi 800-1800 | 21.370 |
James Peter Norton, Finnur Ulf Dellsén | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Skilningur á framförum í heimspeki | 23.005 |
Sofiya Zahova | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | RomIs: Saga og ethnógrafía Rómafólks á Íslandi | 21.437 |
Nýdoktorsstyrkir
Alls barst 51 umsóknir um nýdoktorsstyrki og voru 10 þeirra styrktar eða um 20% umsókna.
Raunvísindi og stærðfræði (25%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Amrita Goswami | Raunvísindastofnun | Líkön af færslu og kristalkornamyndun í jónalausnum með klippikrafti | 11.550 |
Shane Mark Rooyakkers | Raunvísindastofnun | Frá umbrotum til eldgosa: Heildstætt mat á aflfræði kvikukerfa með samtengingu bergfræði og jarðeðlisfræði | 12.000 |
Verkfræði og tæknivísindi (40%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Joseph Lovecchio | Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild | Þróun á magnbundnum lausnum til að nota X-ray microCT og efnaskiptaferla lífmerki til að greina steinefna myndun í beinsérhæfingu í þrívíðu umhverfi | 11.962 |
Valentina Castiglioni | Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild | Forrit í náttúrunni: Óvissa, aðlögunarhæfni og sannprófun | 11.765 |
Náttúru- og umhverfisvísindi (20%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Hildur Magnúsdóttir | Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum | Þróun og vistfræðilegt samspil sjávarsnigla og sníkjudýra þeirra | 11.990 |
Lífvísindi (20%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Csaba Horváth | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Kynjasértækir bólguferlar og ferlar tengdir frumudauða í hjartadrepi | 12.000 |
Félagsvísindi og menntavísindi (17%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Arnar Már Búason | Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið | Virði geðheilbrigðis | 12.000 |
Hildur Fjóla Antonsdóttir | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Meðferð ásakana um kynferðisofbeldi í einkamálum | 11.990 |
Hugvísindi og listir (13%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Ásgeir Berg Matthíasson | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Félagsverkhyggjukenning um sannleika í stærðfræði: wittgensteinísk nálgun | 12.000 |
Yelena Sesselja Helgadóttir Yershova | Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum | Tilbrigði, texti og aðferðafræði við gerð á marktæku úrvali þjóðkvæðatexta með áherslu á íslenskar þulur síðari alda | 11.862 |
Doktorsnemastyrkir
Alls bárust 103 umsóknir um doktorsnemastyrki og voru 23 styrktar eða um 22% umsókna.
Raunvísindi og stærðfræði (18%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Hadi Rezaie Heris | Háskólinn í Reykjavík - Iðn- og tæknifræðideild | Áhrif lögunar á hljóðeindanúning í kjarna/skeljar örvírum | 7.636 |
Nína Aradóttir | Raunvísindastofnun | Landmótun og innri bygging jökulrænna landforma á Norðausturlandi: Ummerki eftir forna ísstrauma | 7.995 |
Verkfræði og tæknivísindi (26%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Albert Alonso Villar | Háskólinn í Reykjavík - Iðn- og tæknifræðideild | Rafvæðing þungaflutninga á Íslandi: Greining á tækifærum og afleiðingum 100% rafvæðingar þungaflutninga á flutningskerfið og dreifikerfið | 6.180 |
Helga Svala Sigurðardóttir | Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild | Lærdómsflokkunarkerfi fyrir textanormun | 7.791 |
Jinchao Wang | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Nanóagnir af málmsúlfíðum sem hvatar fyrir afoxun köfnunarefnis í ammoníak við mildar aðstæður | 7.995 |
Leonard Matthias Eberding | Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild | Sjálfsskoðandi gervigreind | 7.791 |
Steinþór Steingrímsson | Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild | Smíði skilvirkra þjálfunargagna fyrir vélþýðingar | 7.791 |
Náttúru- og umhverfisvísindi (30%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Alessandra Barbara Deborah Schnider | Hólaskóli - Háskólinn á Hólum | Sveigjanlegt svipfar hjá hornsílum Myvatns | 8.000 |
Marion Dellinger | Hólaskóli - Háskólinn á Hólum | Samþætting vist-, þróunar- og þroskunarfræðilegra þátta rýmisgreindar og persónuleika samsvæða bleikjuafbrigða | 7.714 |
Rosanne Beukeboom | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Samanburður á einstaklingseinkennum sem metin eru á rannsóknarstofu og úti í náttúrunni, og áhrif þeirra á hreyfingu og lífslíkur bleikja | 7.714 |
Lífvísindi (17%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Karen Kristjánsdóttir | Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið | Áhrif sviperfðabreytinga á tjáningu DNA viðgerðagena | 7.999 |
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa (13%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Kolfinna Þórisdóttir | Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild | Ný greiningarskilmerki kæfisvefns til að spá betur fyrir um æða og taugasjúkdóma | 7.785 |
Félagsvísindi og menntavísindi (23%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Barbara Olga Horyn | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Öryggi ferðamanna á heimskautasvæðum: Hæfni leiðsögumanna og viðbúnaður við neyðarástandi í samfélögum á norðurslóðum | 7.995 |
Edita Tverijonaite | Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið | Náttúruferðamennska í landslagi endurnýjanlegrar orku | 3.331 |
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir | Háskólinn á Akureyri | Samfélagsleg áhrif og félagslegt taumhald; ungar konur í sjávarþorpum | 7.925 |
Heiður Hrund Jónsdóttir | Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið | Sjálfsmynd og skólaviðhorf nemenda í tengslum við skuldbindingu þeirra og brotthvarf frá námi: Langtímarannsókn á meðal framhaldsskólanema | 7.995 |
Ingi B. Poulsen | Háskólinn í Reykjavík - Lagadeild | 1. Loftslagsbreytingar fyrir dómstólum: Mótun og þróun loftslagsvænni viðskiptahátta fyrirtækja með atbeina réttarkerfisins. | 7.756 |
Ingibjörg Jónsdóttir Kolka | Háskóli Íslands - Menntavísindasvið | Hvernig getur menntun breytt lífssögu fólks? | 7.995 |
Vittorio Orlando | Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið | Brexit: Málsrannsókn í stjórnmálum eftir sannleikann og upplausn Evrópu | 7.995 |
Hugvísindi og listir (21%)
Verkefnisstjórn | Aðsetur | Heiti | ISK (þús.) |
Anthony John Smith | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Samkenndarhugtak fyrirbærafræðinnar og geðhjúkrun: Rannsókn á samkennd í umönnun sjúklinga með geðklofa | 7.044 |
Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | "Er hamingjuríkt líf gulltryggt?": Rannsókn á tvíhyggju hamingju og þjáningar útfrá sjónarhorni karlmanna og kvenna í Forn-Mesópótamíu | 7.999 |
Lea Debora Pokorny | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Bókagerð á Íslandi á seinni hluta 14. aldar. Efnisleg rannsókn á handritum og handritagerð í evrópsku samhengi. | 7.995 |
Sylvía Marsibil Bates | Háskóli Íslands - Hugvísindasvið | Net sem virkar: Uppfinning og þróun flottrollsins | 7.950 |
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.
Upphæðir geta breyst við samningagerð.