Rannsóknasjóður

Fyrir hverja?

Rannsakendur, rannsóknarhópar og nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir og fyrirtæki á Íslandi.

Til hvers?

Rannsóknasjóður veitir styrki til skilgreindra rannsóknaverkefna og rannsóknatengds framhaldsnáms á Íslandi.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur rennur út 14. júni 2024, kl. 15:00.

Umsóknir skulu vera á ensku.

EN


Hlutverk Rannsóknasjóðs

Rannsóknasjóður er opinn samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn nemendur í rannsóknartengdu framhaldsnámi og skilgreind rannsóknarverkefni sem efla stöðu vísindastarfs á Íslandi.

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3 frá 2003. Umfang sjóðsins er ákvarðað af fjárlögum hvers árs.

Hverjir geta sótt um?

Þeir sem hafa lokið rannsóknarnámi við alþjóðlega viðurkennda háskóla og hafa reynslu af rannsóknum. Til að geta sótt um doktorsnemastyrk þarf viðkomandi að hafa verið samþykktur inn í doktorsnám við íslenskan háskóla.

Styrkir Rannsóknasjóðs

Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu.

Boðið er upp á fjórar tegundir styrkja; verkefnisstyrki, öndvegisstyrki, nýdoktorsstyrki og doktorsnemastyrki. Sjá nánar í Handbók Rannsóknasjóðs.

Nánari upplýsingar








Þetta vefsvæði byggir á Eplica