Opið fyrir umsóknir í Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla 2025
Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2025 kl. 15:00. Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við menntastefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.
Sprotasjóður hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir skólaárið 2025-2026. Sjóðurinn styrkir þróunarverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum skv. reglugerð hans nr. 242/2009. Markmið sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá .
Árið 2025 eru áherslusvið sjóðsins:
- Leikurinn sem leið til náms.
- Gervigreind.
- Grunnþáttur menntunar - Læsi.
Hægt er að senda inn umsóknir sem ekki falla undir þessi áherslusvið. Allar umsóknir eru metnar út frá matskvarða sjóðsins.
Á hverju ári styrkir sjóðurinn tugi verkefna alls staðar af landinu sem stuðla að þróun og nýsköpun í skólastarfi. Árið 2024 veitti Sprotasjóður 59,8 milljónir króna til 32 verkefna.
Rannís sér um umsýslu Sprotasjóðs fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Hér er hægt að lesa meira um Sprotasjóð
Fyrir nánari upplýsingar eða ef spurningar vakna má hafa samband við Óskar (515 5839) eða Skúla (515 5843) eða senda fyrirspurn á sprotasjodur@rannis.is