Kynning á tækifærum innan Evrópska nýsköpunarráðsins
Þriðjudaginn 12. nóvember kl. 9:00-11:30 á Hótel Sögu
Við bjóðum til kynningarfundar til að auka vitund meðal almennings og hagsmunaaðila á starfsemi Evrópska nýsköpunarráðsins og þeim möguleikum á nýsköpunarstyrkjum og fjármögnunartækifærum sem standa til boða fyrir framsækin íslensk fyrirtæki, frumkvöðla og vísindamenn, undir næstu rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe (2021-2027).
Aukin áhersla verður á nýsköpun í næstu rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe (2021-2027).
Á opnum kynningarfundi, sem haldinn verður 12. nóvember kl. 9:00-11:30 á Hótel Sögu, verður Evrópska nýsköpunarráðið (European Innovation Council) kynnt og möguleikar á nýsköpunarstyrkjum og öðrum fjármögnunartækifærum fyrir framsækin íslensk fyrirtæki.
Húsið opnar með morgunkaffi kl. 8:30. Allir velkomnir, vinsamlega skráið þátttöku hér.
Dagskrá:
- Michael Mann sendiherra ESB á Íslandi býður gesti velkomna og stýrir fundi
- Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpar fundinn
- Kynning á Evrópska nýsköpunarráðinu undir Horizon Europe (2021-2027)
Signe Ratso, aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar (Deputy Director, DG RTD)
Elsa Papadopoulou og Cornelius Schmaltz frá framkvæmdastjórn ESB - Þjónusta Rannís. Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
- Reynslusögur íslenskra styrkþega
Nox Medical
DT Equipment
Saga Natura - Fyrirspurnir og umræður