Barnamenningarsjóður úthlutar styrkjum til 41 verkefnis árið 2023
Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2023. Þetta er fimmta og síðasta úthlutun sjóðsins í núverandi mynd.
Sjóðurinn styrkir 41 metnaðarfullt verkefni og er heildarupphæð úthlutunarinnar 96,8 milljónir króna. Alls bárust 105 umsóknir og var sótt um tæplega fjórfalda þá upphæð sem sjóðurinn hafði til úthlutunar eða rúmar 373 milljónir króna. Úthlutun var tilkynnt við athöfn í skála Alþingis á degi barnsins, sunnudaginn 21. maí 2023.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra ávörpuðu fulltrúa verkefnanna af þessu tilefni og Eva Jáuregui söng tvö lög við undirleik Francisco Javier Jáuregui.
Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknirnar og forsætisráðherra samþykkti tillögu stjórnar sjóðsins. Í umsögn fagráðs segir m.a.: „Til að draga fram eitthvað sem segja má að einkenni umsóknirnar í ár, þá eru það helst þættir á borð við aðgengi og inngildingu, ásamt því sem flokka mætti sem samspil náttúruvísinda, umhverfisverndar og listsköpunar. Nokkur fjöldi umsókna tekur með sannfærandi hætti mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem er ótvíræður styrkur. Eins má nefna umsóknir sem byggja á umfangsmiklu erlendu samstarfi, sem er til þess fallið að auðga varanlega starf barna og ungmenna á sviði lista og menningar. Þá var í ár nokkur fjölgun umsókna um fjölbreyttar barnamenningarhátíðir, þar sem innlend verkefni af ólíkum toga eru tengd saman undir einn hatt, ýmist þematengt eða landshlutabundið.“
Hæstu styrkina fá Guðrún Rútsdóttir o.fl. fyrir verkefnið „Djasshátíð barnanna og Barnadjass um allt land“ og Listasafn Íslands fyrir verkefnið „Ísabrot – Jöklar í íslenski náttúru“, þar sem listamenn munu vinna með grunnskólabörnum í öllum landshlutum.
Nánari lýsing á verkefnum sem voru styrkt
Styrkt verkefni 2023
Umsækjandi | Titill | Úthlutun í kr. |
Guðrún Rútsdóttir | Djasshátíð barnanna - Barnadjass um allt land | 6.000.000 |
Listasafn Íslands | Ísabrot – jöklar í íslenskri náttúru | 6.000.000 |
Hringleikur - sirkuslistafélag | Sæskrímslin | 5.500.000 |
Austurbrú ses. | BRAS menningarhátíð fyrir börn og ungmenni á Austurlandi / Hringavitleysa | 5.000.000 |
Náttúruminjasafn íslands | Eldur, ís og mjúkur mosi – börn segja frá þjóðgarðinum sínum | 5.000.000 |
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands ehf. | Burtu með fordóma | 5.000.000 |
Vestfjarðastofa ses. | Barnamenningarhátíð á Vestfjörðum | 4.600.000 |
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg | Skjaldbakan | 4.500.000 |
Akraneskaupstaður | Barnamenning Akraness 2024 | 4.100.000 |
Pera Óperukollektíf, félagasamtök. | Söng- og óperuverkefni á Óperudögum 2023 | 4.000.000 |
Leikfélag Reykjavíkur ses. | Krakkaþing Fíusólar | 3.300.000 |
Jóhann Guðmundur Jóhannsson | Tumi fer til tunglsins | 3.000.000 |
Eyjólfur Eyjólfsson | Langspilssmiðjur með Fab Lab-langspilum. | 3.000.000 |
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf. | Fjölskyldudagskrá Hörpu, inngildingar- og aðgengisátak | 3.000.000 |
Reykjanesbær | List ástundun sem jöfnunartæki og sýning barna í Reykjanesbæ. | 2.900.000 |
Sprengjuhöllin ehf | Trúnaðarmál | 2.800.000 |
Menningarfélagið MurMur | Twisted Forest | 2.270.000 |
Reykjavíkurborg | Sögur - Skapandi skrif og Sögur - Verðlaunahátíð barnanna | 2.000.000 |
ASSITEJ á Íslandi - samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur. | UNGI- Sviðslistahátið allra barna | 2.000.000 |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | Hinsegin prentfélagið | 2.000.000 |
Ásthildur Ákadóttir | Máfurinn tónlistarsmiðja | 2.000.000 |
STEM Ísland, félagsamtök | Náttúruvísindakrakkar: Sumarnámskeið á Húsavík | 1.800.000 |
Miðnætti leikhús | Á eigin fótum - leiksýning og námskeið | 1.650.000 |
LungA-Listahátíð ungs fólks,AL | Fjölskylduhátíð LungA og smiðjur fyrir Lunga unga, krakka og ungmenni | 1.480.000 |
Hlutmengi ehf. | MENGI MIX | 1.360.000 |
Nanna Gunnarsdóttir | Tíst tíst! Tweet tweet! Cwir cwir! | 1.350.000 |
Sequences-myndlistarhátíð | Myndlistarmiðlunarátak til barna og ungmenna á Sequences | 1.300.000 |
Kammerhópurinn Reykjavík-Barokk | "Krakka-barokk í Breiðholti" - fjölskyldutónleikar | 1.000.000 |
Steingrímur - Listfélag Steingrímsfjarðar | Ísleifur á heimaslóðum | 1.000.000 |
Leikfélag Hornafjarðar | Spuna smiðjur fyrir börn á Hornafirði. | 1.000.000 |
Listasafn Ísafjarðar | listasmiðjur / námskeið Listasafns Ísafjarðar - Einn, tveir og skapa! | 970.000 |
Norðurslóðanet Íslands | Að alast upp þar sem ,,ekkert gerist" málþing á alþjóðlegri ráðstefnu ásamt listviðburði á ráðstefnunni. | 900.000 |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | Við matarborðið | 820.000 |
Mýrin, félag um barnabókmenntahátíð | Mýrin, alþjóðleg barnabókmenntahátíð | 800.000 |
Akureyrarbær | Samspil – Listvinnustofur ungmenna af erlendum uppruna | 760.000 |
Sumartónleikar Skálholtskirkju | Óður til tómatsins | 650.000 |
Borgarbókasafn Reykjavíkur | Hvað er Ljóðaslamm? – undirbúningsnámskeið fyrir Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins | 550.000 |
Foreldrafélag Drengjakórs Rvík | Samhljómur - The Boys are Singing II | 500.000 |
Stelpur rokka!,félagasamtök | Tónleikasmiðja Stelpur rokka! | 420.000 |
Rekstrarfélagið GRÍMA ehf. | Klippimyndir - samskeytingar – skúlptúr. Gæðastund fyrir börn með foreldrum sínum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar | 320.000 |
Amtsbókasafnið á Akureyri | Vísindasmiðjur unga fólksins | 200.000 |
Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028 er gert ráð fyrir að „Barnamenningarsjóður Íslands, sem stofnaður var með þingsályktun nr. 32/148, verði varanlegur sjóður og njóti framlaga af fjárlögum, 120 millj. kr. á ári.“