Úthlutun Listamannalauna 2025
Úthlutunarnefndir launasjóða listamanna hafa lokið störfum vegna úthlutunar listamannalauna árið 2025.
Til úthlutunar voru 1720 mánaðarlaun úr átta launasjóðum: hönnuða, myndlistarmanna, rithöfunda, sviðslistafólks, tónlistarflytjenda, tónskálda, kvikmyndahöfunda og Vegsemd fyrir listamenn 67 ára og eldri. Tveir síðastnefndu sjóðirnir bættust við með breytingum á lögum um listamannalauna sl. sumar.
Fjöldi umsækjenda var 1.339 þar af 1.223 einstaklingar og 116 sviðslistahópar.
Sótt var um 11.988 mánuði þar af 1.611 mánuði innan sviðslistahópa.
Úthlutun fær 251 listamaður. Við hana bætist úthlutun til þátttakenda í sviðslistahópum úr launasjóði sviðslistafólks sem tengist Sviðslistasjóði. Úthlutun úr Sviðslistasjóði verður tilkynnt á nýju ári.
Vegsemd er nýr sjóður fyrir listamenn 67 ára og eldri, til úthlutunar voru 60 mánaðarlaun fyrir sjö fagsjóði. Stjórn listamannalauna ákveður skiptingu mánaða á milli launasjóða. Úthlutun dreifðist á alla sjóði. Átta listamenn úr öllum launasjóðum fá samtals 66 mánuði úr Vegsemd þar sem 6 mánuðir voru færðir frá fagsjóðum yfir í Vegsemd samkvæmt heimild í lögum. Úthlutun úr Vegsemd hækkar í skrefum og nær 180 mánuðum árið 2028 (sjá lagafrumvarp). Í heildina fá 20 listamenn sem eru 67 ára og eldri úthlutun, samtals 159 mánuði.
Í frumvarpi um breytingar á lögum um listamannalaun stóð til að stofna launasjóðinn Vöxt fyrir ungt listafólk, 35 ára og yngri. Í meðförum þingsins féll Vöxtur út en á móti kom (í meirihlutaáliti allsherjar- og menntamála nefndar) aukin áhersla á nýliðun. 48 listamenn yngri en 35 ára fá samtals 221 mánuð eða um 13% af mánuðum fagsjóða. Af þeim teljast 30 vera nýliðar.
Nýliðar teljast listamenn sem aldrei hafa fengið úthlutun eða hafa fengið allt að þriggja mánaða úthlutun einu sinni. Áhersla stjórnar var að nýliðun árið 2025 yrði að lágmarki 7% af úthlutuðum mánuðum og gekk það eftir í öllum sjóðum. Nýliðun er breytileg milli sjóða en er að jafnaði um 14% af mánuðum sjóða. Alls teljast 68 launþegar til nýliða og fá 286 mánuði.
Listamannalaun árið 2025 verða 560.000 kr. á mánuði
Listamannalaun sem úthlutað var fyrir árið 2024 eru 538.000 kr. á mánuði.
Um verktakagreiðslur er að ræða.
Eftirtöldum listamönnum voru veitt starfslaun*:
Launasjóður hönnuða – 56 mánuðir
8 mánuðir
- Birta Fróðadóttir
6 mánuðir
- Arnar Már Jónsson
- Auður Gná Ingvarsdóttir
- Erla Sólveig Óskarsdóttir
- Sæunn Huld Þórðardóttir
5 mánuðir
- Antonía Bergþórsdóttir
- Sigmundur Páll Freysteinsson
- Signý Þórhallsdóttir
3 mánuðir
- Guðmundur Magnússon
- Íris Indriðadóttir
- Signý Jónsdóttir
Launasjóður myndlistarmanna – 458 mánuðir
24 mánuðir (12 skuldbundnir af 2026 úthlutun)
- Ásta Fanney Sigurðardóttir
12 mánuðir
- Andreas Martin Brunner
- Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
- Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar
- Kristín G. Gunnlaugsdóttir
- Sigurður Guðjónsson
- Una Björg Magnúsdóttir
- Þorgerður Ólafsdóttir
- Þuríður Rúrí Fannberg
11 mánuðir
- Hrafnkell Sigurðsson
9 mánuðir
- Amanda Katia Riffo
- Bryndís H. Snæbjörnsdóttir
- Finnbogi Pétursson
- Guðný Rósa Ingimarsdóttir
- Gústav Geir Bollason
- Helgi Þorgils Friðjónsson
- Margrét H. Blöndal
- Ólafur Sveinn Gíslason
- Rósa Gísladóttir
6 mánuðir
- Anna Helen Katarina Hallin
- Anna Rún Tryggvadóttir
- Arna Óttarsdóttir
- Arnar Ásgeirsson
- Arngunnur Ýr Gylfadóttir
- Birgir Snæbjörn Birgisson
- Boaz Yosef Friedman
- Claudia Hausfeld
- Deepa Radhakrishna Iyengar
- Einar Garibaldi Eiríksson
- Eirún Sigurðardóttir
- Elín Hansdóttir
- Erling Þór Valsson
- Eygló Harðardóttir
- Guðmundur Thoroddsen
- Gunnar Jónsson
- Haraldur Jónsson
- Helgi Eyjólfsson
- Hildigunnur Birgisdóttir
- Hildur Elísa Jónsdóttir
- Jóní Jónsdóttir
- Katrín Bára Elvarsdóttir
- Katrín Sigurðardóttir
- Kolbeinn Hugi Höskuldsson
- Kristín Þorláksdóttir
- Linus Lohmann
- Magnús Óskar Helgason
- Magnús Tumi Magnússon
- María Sjöfn Dupuis Laufeyjardóttir
- Olga Soffía Bergmann
- Ólöf Nordal
- Pétur Thomsen
- Ráðhildur Sigrún Ingadóttir
- Sara Björnsdóttir
- Selma Hreggviðsdóttir
- Sigríður Björg Sigurðardóttir
- Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
- Sigurður Atli Sigurðsson
- Sólveig Aðalsteinsdóttir
- Unnar Örn Jónasson Auðarson
- Þóra Sigurðardóttir
Launasjóður rithöfunda – 566 mánuðir
12 mánuðir
- Eiríkur Örn Norðdahl
- Gerður Kristný Guðjónsdóttir
- Gunnar Helgason
- Hallgrímur Helgason
- Kristín Ómarsdóttir
- Pétur Gunnarsson
- Ragnar Helgi Ólafsson
- Ragnheiður Sigurðardóttir
- Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Sigrún Eldjárn
- Steinar Bragi Guðmundsson
- Yrsa Þöll Gylfadóttir
- Þórdís Gísladóttir
- Þórdís Helgadóttir
9 mánuðir
- Auður Jónsdóttir
- Áslaug Jónsdóttir
- Bergrún Íris Sævarsdóttir
- Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Bragi Ólafsson
- Brynja Hjálmsdóttir
- Einar Már Guðmundsson
- Fríða Jóhanna Ísberg
- Guðrún Eva Mínervudóttir
- Gunnar Theodór Eggertsson
- Gyrðir Elíasson
- Hildur Knútsdóttir
- Jón Kalman Stefánsson
- Kristín Eiríksdóttir
- Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir
- Ófeigur Sigurðsson
- Pedro Gunnlaugur Garcia
- Steinunn Sigurðardóttir
- Ævar Þór Benediktsson
6 mánuðir
- Alexander Dan Vilhjálmsson
- Andri Snær Magnason
- Arndís Þórarinsdóttir
- Benný Sif Ísleifsdóttir
- Bergsveinn Birgisson
- Bragi Páll Sigurðarson
- Brynjólfur Þorsteinsson
- Einar Kárason
- Emil Hjörvar Petersen
- Eva Rún Snorradóttir
- Friðgeir Einarsson
- Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson
- Harpa Rún Kristjánsdóttir
- Haukur Már Helgason
- Hermann Stefánsson
- Mazen Maarouf
- Natalia Stolyarova
- Ragnheiður Eyjólfsdóttir
- Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
- Rán Flygenring
- Sif Sigmarsdóttir
- Sigrún Pálsdóttir
- Sigurbjörg Þrastardóttir
- Soffía Bjarnadóttir
- Sunna Dís Másdóttir
- Sölvi Björn Sigurðsson
- Vilborg Davíðsdóttir
- Þórunn Elín Valdimarsdóttir
3 mánuðir
- Anna Hafþórsdóttir
- Birta Ósmann Þórhallsdóttir
- Einar Lövdahl Gunnlaugsson
- Elías Rúni Þorsteins
- Fanney Hrund Hilmarsdóttir
- Gunnar Þorri Pétursson
- Ingólfur Eiríksson
- Joachim Beat Schmidt
- Kristján Þórður Hrafnsson
- Linda Dögg Ólafsdóttir
- Malgorzata Nowak
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- María Elísabet Bragadóttir
- Tómas Ævar Ólafsson
- Valgerður Ólafsdóttir
- Þóra Hjörleifsdóttir
2 mánuðir
- Elfar Logi Hannesson
Launasjóður sviðslistafólks – 200 mánuðir
Einstaklingar - 98 mánuðir
12 mánuðir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Hrafnhildur H. Guðmundsdóttir
- Steinunn Hildigunnur Knúts Önnudóttir
- Tyrfingur Tyrfingsson
9 mánuðir
- Margrét Bjarnadóttir
6 mánuðir
- Birnir Jón Sigurðsson
- Bjarni Jónsson
- Jóhann Kristófer Stefánsson
4 mánuðir
- Adolf Smári Unnarsson
3 mánuðir
- Ásrún Magnúsdóttir
- Felix Urbina Alejandre
- Kolfinna Nikulásdóttir
- Margrét Sara Guðjónsdóttir
- Rósa Ómarsdóttir
2 mánuðir
- Halla Þórðardóttir
- Saga Kjerúlf Sigurðardóttir
Sviðslistahópar – 102 mánuðir.
Verður uppfært eftir úthlutun Sviðslistasjóðs í janúar 2025.
Kemur listi yfir verkefni, og úthlutaðan mánaðarfjölda til þátttakenda.
Launasjóður tónlistarflytjenda – 186 mánuðir
Umsóknir í launasjóð tónlistarflytjenda tengdust nokkuð skilgreindum samstarfsverkefnum tónlistarflytjenda til afmarkaðs tíma. Úthlutun ber þess merki að töluverður fjöldi úthlutana eru til skemmri tíma en 6 mánaða. Einnig eru tilvik þar sem þriggja mánaða úthlutanir tengjast því að tónlistarflytjandi er einnig að fá úthlutun úr launasjóði tónskálda.
12 mánuðir
- Hildigunnur Einarsdóttir
9 mánuðir
- Björk Níelsdóttir
- Ómar Guðjónsson
- Óskar Guðjónsson
- Ragnheiður Gröndal
6 mánuðir
- Árný Margrét Sævarsdóttir
- Ásgeir Óskarsson
- Bjarni Thor Kristinsson
- Björg Brjánsdóttir
- Guðrún Dalía Salómonsdóttir
- Gunnsteinn Ólafsson
- Magnús Trygvason Eliassen
- Margrét Hrafnsdóttir
- Sigrún Harðardóttir
- Stefan Sand
- Svanur Davíð Vilbergsson
- Tómas Jónsson
- Þóra Margrét Sveinsdóttir
- Þórdís Gerður Jónsdóttir
3 mánuðir
- Arnar Guðjónsson
- Ásgeir Aðalsteinsson
- Ásgeir Jón Ásgeirsson
- Áslákur Ingvarsson
- Benedikt Kristjánsson
- Eggert Reginn Kjartansson
- Eyjólfur Eyjólfsson
- Jóna G. Kolbrúnardóttir
- Kjartan Valdemarsson
- Kristín Sveinsdóttir
- Sara Mjöll Magnúsdóttir
- Sigríður Thorlacius
- Skúli Sverrisson
- Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
- Svavar Knútur Kristinsson
- Una Sveinbjarnardóttir
- Unnsteinn Árnason
- Valdimar Guðmundsson
Launasjóður tónskálda – 200 mánuðir
Í fimm tilvikum þar sem úthlutað er til þriggja mánaða er tónskáld einnig að fá úthlutun úr launasjóði tónlistarflytjenda. Önnur fimm tilvik tengjast samstarfsverkefnum á milli tónskálda.
12 mánuðir
- Bára Gísladóttir
- Guðmundur Steinn Gunnarsson
- Viktor Orri Árnason
9 mánuðir
- Daníel Bjarnason
- Gyða Valtýsdóttir
- Hlynur Aðils Vilmarsson
8 mánuðir
- Þuríður Jónsdóttir
6 mánuðir
- Áki Ásgeirsson
- Áskell Másson
- Bergrún Snæbjörnsdóttir
- Diana Burkot
- Eiríkur Orri Ólafsson
- Guðrún Ýr Eyfj. Jóhannesdóttir
- Halldór Eldjárn
- Haukur Tómasson
- Mikael Nils Lind
- Tómas Ragnar Einarsson
- Tumi Árnason
- Veronique Jacques
- Þorsteinn Hauksson
- Örnólfur Eldon Þórsson
3 mánuðir
- Arnar Guðjónsson
- Birnir Sigurðarson
- Bjargmundur Ingi Kjartansson
- Eva Jóhannsdóttir
- Gunnsteinn Ólafsson
- Indriði Arnar Ingólfsson
- Jelena Ciric
- Kjartan Valdemarsson
- Laufey Soffía Þórsdóttir
- Margrét Rósa Dórud. Harrysdóttir
- Ragnheiður Gröndal
- Sara Mjöll Magnúsdóttir
- Sólveig M. Kristjánsdóttir
- Þóranna Dögg Björnsdóttir
- Ægir Sindri Bjarnason
Launasjóður kvikmyndahöfunda – 66 mánuðir
12 mánuðir
- Ísold Uggadóttir
6 mánuðir
- Ása Helga Hjörleifsdóttir
- Hilmar Oddsson
- Hlynur Pálmason
- María Sólrún Sigurðardóttir
- Óskar Þór Axelsson
- Valdimar Jóhannsson
- Yrsa Þurý Roca Fannberg
3 mánuðir
- Haukur Björgvinsson
- Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- Þóra Hilmarsdóttir
- Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir
Skipting umsókna milli sjóða 2025 var eftirfarandi:
Launasjóður hönnuða: 56 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 6 mánuðir úr Vegsemd. 67 umsóknir bárust og sótt var um 520 mánuði.
- Starfslaun fá 11 hönnuðir, 8 konur og 3 karlar .
Launasjóður myndlistarmanna: 458 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 11 mánuðir úr Vegsemd og 12 mánuðir eru skuldbundnir af 2026 úthlutun. 329 umsóknir bárust og sótt var um 2.961 mánuð.
- Starfslaun fá 60 myndlistarmenn, 36 konur og 24 karlar.
Launasjóður rithöfunda: 566 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 11 mánuðir úr Vegsemd. 237 umsóknir bárust og sótt var um 2.349 mánuði.
- Starfslaun fá 79 rithöfundar, 44 konur, 34 karlar og 1 kynsegin.
Launasjóður sviðslistafólks: 200 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 10 mánuðir úr Vegsemd. Sótt var um 1.971 mánuð (1.611 mánuði fyrir hópa og 360 mánuði fyrir einstaklinga). Alls bárust 68 einstaklingsumsóknir og 116 umsóknir frá sviðslistahópum með 480 nafngreindum þátttakendum innanborðs. Sótt var um listamannlaun fyrir 413 listamenn innan hópanna. Margir þátttakendur tengjast fleiri en einni umsókn.
- Starfslaun fá 16 sviðslistamenn í 98 mánuði, 10 konur og 6 karlar.
- Þátttakendur í sviðslistahópum fá 102 mánuði. Úthlutun til hópa tengist úthlutun Sviðslistasjóðs sem tilkynnt verður í janúar 2025.
Launasjóður tónlistarflytjenda: 186 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 6 mánuðir úr Vegsemd. 201 umsókn barst og sótt var um 1.453 mánuði.
- Starfslaun fá 37 tónlistarmenn, 21 kona og 16 karlar
Launasjóður tónskálda: 200 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 10 mánuðir úr Vegsemd. 197 umsóknir bárust og sótt var um 1.741 mánuð.
- Starfslaun fá 36 tónskáld, 15 konur og 21 karl.
Launasjóður kvikmyndahöfunda: 66 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 6 mánuðir úr Vegsemd. 124 umsóknir bárust og sótt var um 993 mánuði.
- Starfslaun fá 12 kvikmyndahöfundar, 7 konur og 5 karlar.
Úthlutunarnefndir 2025 voru skipaðar sem hér segir:
Launasjóður hönnuða, tilnefndur af samtökum hönnuða og arkitekta
- Erla Björk Baldursdóttir, formaður
- Emilía Borgþórsdóttir
- Ragnar Frank Kristjánsson
Launasjóður myndlistarmanna, tilnefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna
- Hlynur Helgason, formaður
- Inga Jónsdóttir
- Karl Ómarsson
Launasjóður rithöfunda tilnefndur af Rithöfundasambandi Íslands
- Jórunn Th. Sigurðardóttir, formaður
- Gunnar Skarphéðinsson
- Hildur Ýr Ísberg
Launasjóður sviðslistafólks tilnefndur af Sviðslistasambandi Íslands
- Pétur Ármannsson, formaður
- Hafliði Arngrímsson
- Þóra Einarsdóttir
Launasjóður tónlistarflytjenda
- Helgi Jónsson, formaður, tilnefndur af Félagi íslenskra tónlistarmanna
- Þóra Sif Svansdóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra hljómlistarmanna
- Hlín Erlendsdóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra hljómlistarmanna
Launasjóður tónskálda
- Hafdís Bjarnadóttir, formaður tilnefnd af Tónskáldafélagi Íslands
- Magnús A. Jensson, tilnefndur af Tónskáldafélagi Íslands
- Ragnheiður Eiríksdóttir, tilnefnd af Félagi tónskálda og textahöfunda
Launasjóður kvikmyndahöfunda
- Björn Þór Vilhjálmsson, formaður, tilnefndur af félagi leikskálda og handritshöfunda
- Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, tilnefnd af félagi leikskálda og handritshöfunda
- Gréta Óladóttir, tilnefnd af félagi kvikmyndaleikstjóra
Stjórn listamannalauna - skipuð 1. júní 2024 - 31. maí 2027
- Jónatan Garðarsson formaður, skipaður án tilnefningar,
- Kolbrún Ýr Einarsdóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna,
- Eva María Árnadóttir tilnefnd af Listaháskóla Íslands.
*Birt með fyrirvara um villur
Úthlutunarnefndir Launasjóðs listamanna starfa skv. lögum (57/2009) og reglugerð (834/2009) um listamannalaun, þar sem kveðið er á um að allar umsóknir fái sanngjarna umfjöllun.