Styrkir úr Tónlistarsjóði 2023
Auglýst er eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu: 1. janúar – 30. júní 2023.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á síðu Tónlistarsjóðs.
Umsóknum og lokaskýrslum er skilað rafrænt.
Umsóknarfrestur rennur út 1. nóvember 2022 kl. 15.00
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember. Næsti umsóknarfrestur er 2. maí 2023