Rannís á Nýsköpunarviku: The Innovative Globetrotter
Rannís tekur þátt í Nýsköpunarvikunni með tveimur viðburðum miðvikudaginn 15. maí næstkomandi og eru öll velkomin.
Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network bjóða til hádegisviðburðar undir yfirskriftinni "The Innovative Globetrotter" sem myndi útleggjast á íslensku sem "Skapandi heimshornaflakkarinn".
Viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 11:30.
Á þessum viðburði munu gestir meðal annars heyra frá aðilum úr nýsköpunargeiranum sem hafa tekið skrefið út fyrir landsteinana með stuðningi í gegnum Rannís. Fjallað verður um Eurostars , Innowwide , Digital Europe og Enterprise Europe Network .
Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Nýsköpunarviku Íslands og er haldinn í Pop-up rými (Regnboga) Nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi ( KORT )
Boðið verður upp á léttan hádegisverð og í lokin brjótum við upp dagskrárformið og kitlum hláturtaugarnar með sérstökum gesti.
Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun í íslensku samfélagi og vilja fræðast um tækifæri á erlendri grundu.
Dagskrá
- 11:30 Velkomin - Mjöll Waldorff, sérfræðingur hjá Rannís
- 11:40 Geosilica - Fida Abu Libdeh framkvæmdastýra og stofnandi
- 11:50 Digital Europe - Sigþrúður Guðnadóttir, sérfræðingur hjá Rannís
- 12:00 Defend Iceland - Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi
- 12:10 Uppistand - Snjólaug Lúðvíksdóttir
- 12:30 Viðburði lýkur
Þess má geta að Nýsköpunarsjóður námsmanna og Eurodesk eru með viðburð á undan þessum viðburði og hvetjum við öll að kíkja einnig á hann.
Þá verður sýningarbás frá Rannís á sýningarsvæði Nýsköpunarvikunnar í Kolaportinu, þar sem tækifæri á sviði nýsköpunar verða í forgrunni.