Varðmenn gegn netvættum – Styrkjum skjaldborgina!
Rannís, Eyvör (NCC-IS) og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) bjóða á viðburðinn „Varðmenn gegn netvættum – Styrkjum skjaldborgina!“ mánudaginn 17. febrúar í Fenjamýri, Grósku.
Á viðburðinum verður fjallað um netöryggisstyrk Eyvarar og hvernig hann geti nýst fyrirtækjum og opinberum aðilum. Þá munu gestir heyra reynslusögur um árangursríkar netöryggislausnir og hvernig styrkurinn hefur nú þegar nýst styrkþegum t.d. í nýsköpunargeiranum.
Salurinn opnar kl. 11:45 og hefst fundurinn
kl. 12:00. Léttur hádegisverður í boði.
Nauðsynlegt er að skrá sig.
Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Eyvör - National Coordination Centre Iceland.
Dagskrá
![]() |
Eyjólfur Eyfells, sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður netöryggisstyrks Eyvarar, mun segja í stuttu máli frá tilkomu netöryggisstyrks Eyvarar og hvað hafa ber í huga þegar sótt erum um styrkinn. |
![]() |
Theodór Ragnar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland og formaður fagráðs netöryggisstyrks, mun fjalla um helstu ógnir sem við stöndum frammi fyrir og hugmyndir að netöryggislausnum sem hægt er að sækja um styrk fyrir. |
![]() |
Tinna Harðardóttir, upplýsingatæknistjóri Innnes og meðlimur í fagráði netöryggisstyrks, mun fjalla um þær aðferðir og netöryggislausnir sem innleiddar eru hjá Innnes og hafa reynst árangursríkar. |
![]() |
Bjarki Guðmundsson, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjá Evolv Robotics og verkefnastjóri netöryggisvegferðar Evolv, mun fjalla um hvernig netöryggisstyrkurinn nýtist ört vaxandi sprotafyrirtæki en Evolv Robotics er sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu og hlaut netöryggisstyrk sl. haust. |
Eyvör - National Coordination Centre Iceland er samstarfsvettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi.
EDIH-IS (European Digital Innovation Hub) er samstarfsvettvangur sem hefur það að markmiði að styðja við stafræna nýsköpun og þróun hjá íslenskum fyrirtækjum og opinberum aðilum. Um er að ræða fyrsta viðburð mánaðarlegra hádegisfunda þar sem ólík málefni á sviði EDIH verða tekin fyrir.
![]() |
![]() |