Kynningarfundur um Eurostars-3 og Innowwide
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 30. janúar 2024 kl. 9:00-10:00 í húsnæði Rannís, Borgartúni 30, í Hvammi á 3. hæð og á Teams.
Eurostars og Innowwide eru sameiginlegar áætlanir Evrópusambandsins og EUREKA Network með það markmið að styðja við nýsköpun.
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum Eurostars verkefna, þ.a.m.:
- lítil og meðalstór fyrirtæki í rannsóknar- og þróunarstarfsemi
- háskólar
- opinberar rannsóknastofnanir
- opinber fyrirtæki
Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á fundinn með því að smella á hlekk á skráningarform hér fyrir neðan.
Skáðu þig á kynningarfundinn
Hlekkur á streymi á fund 30. janúar
Opið er fyrir Eurostars umsóknir til 14. mars 2024 kl. 13:00 að íslenskum tíma (kl. 14:00 CET).
Umsóknum er skilað rafrænt á vef Eurostars
Dagskrá:
- Eurostars-3: Innovative SME‘s
Mjöll Waldorff, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís og vara stjórnarnefndarfulltrúi Eurostars á Íslandi (NPC) - Eurostars og Innowwide - hvað þarf að hafa í huga við umsókn
Helga Waage, tæknistjóri Mobilitus ehf. og fulltrúi í Eurostars International Evaluation Panel - Leit að samstarfsaðila – þjónusta Enterprise Europe Network
Brynja Jónsdóttir, sérfræðingur í alþjóðateymi Rannís - Fyrirspurnir og léttar veitingar