Vorfundur Tækniþróunarsjóðs: Er líf án tækni?
Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2016 fer fram á Kex Hostel föstudaginn 27. maí kl. 14-18.
@taeknithroun #erlífántækni #tækniþróunarsjóður tths.is
Fundarstjóri er Jói Sigurðsson, stofnandi CrankWheel
Léttar veitingar og ljúfir tónar í lok fundar
Dagskrá
Ávarp Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra
Úthlutun Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs býður nýja styrkþega velkomna til samstarfs
Tækniþróun og nýsköpun eru að gjörbylta heiminum! Hver er staðan á Íslandi?
Yngvi Björnsson, deildarforseti tölvunarfræðideildar HR
Horft til framtíðar Sigurður Björnsson hjá Tækniþróunarsjóði ræðir við Ragnheiði H. Magnúsdóttur, formann tækninefndar Vísinda- og tækniráðs, og Ara Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík sem situr í vísindanefnd Vísinda og tækniráðs. Inn í samtal þeirra fléttast viðtöl við breiðan hóp valinkunnra stjórnenda sem deila þekkingu sinni og sýn á ólíkar hliðar nýsköpunar og tækniþróunar á Íslandi.
Þeir eru:Garðar Eyjólfsson, lektor og fagstjóri vöruhönnunar við LHÍ, Hilmar Veigar, forstjóri CCP, Kristján Leósson, framkvæmdastjóri NMI, Jói Sigurðsson, stofnandi CrankWheel, Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, Þorbjörg Jensdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Ice Medico, Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri Auðlindagarðs, Þórður Magnússon, fjárfestir hjá Eyri Invest, og Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor við HÍ og rannsóknastjóri Zymetech.