Auglýst eftir umsóknum í Nýsköpunarsjóð námsmanna
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni. Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2020 kl. 16.00.
Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja
til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna.
Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.
Úthlutun mun liggja fyrir í byrjun mars 2020.
Hverjir geta sótt um?
- Háskólanemar í grunn- og meistaranámi við íslenska háskóla.
- Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir.
Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn@rannis.is