Vísindakakó fyrir forvitna krakka á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal 2. nóvember

25.10.2024

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

  • Visindakako-Borgarbokasafnid-Ulfarsardal

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Laugardaginn 2. nóvember gest frábært tækifæri til þess að hitta vísindamenn sem rannsaka maura á Ísland og  kynnast  undraheimi mauranna. Á staðnum verða lifandi maurabú, smásjár, og verkefni fyrir fólk á öllum aldri. 

Það er Marco Mancini, aðstoðarmaður rannsókna í líffræði, við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands,  sem mun segja gestum frá rannsóknum og vísindastörfum tengdum maurum á Íslandi en með Marco verða einnig Andreas Guðmundsson Gaehwiller og Rafn Sigurðsson sem báðir eru nemar í líffræði við Háskóla Íslands.

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskráin í vetur

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Facebook viðburður









Þetta vefsvæði byggir á Eplica