Vinnustofa fyrir rannsakendur frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum
Vinnustofa fyrir rannsakendur frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum verður haldin 19.-21. ágúst 2024 í Norræna húsinu í Þórshöfn á Færeyjum. Vinnustofan er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni.
Vinnustofan veitir rannsakendum tækifæri til að þróa samstarf á mikilvægum vísindasviðum með sameiginlegan ávinning að leiðarljós og er ætlað að styrkja frekara vísindasamstarf á milli Vestnorrænu landanna.
Engar takmarkanir eru á þema vinnustofunnar, en ákveðin lykilorð verða í forgrunni:
- græn orka
- félagsvísindi
- öryggismál/geópólitík
- málefni hafsins, loftslagsmál, bláa hagkerfið
- sjálfbærni
- heilsa/erfðafræði
Umsóknarfrestur um þátttöku á vinnustofunni er til og með 24 apríl og geta aðilar á Íslandi sótt um ferðastyrk upp að 8,000 dönskum krónum (um 160,000 ISK) fyrir þátttöku sinni.
Umsókn um þátttöku og ferðastyrk
Vinnustofan er skipulögð af Rannsóknaráði Færeyja, Rannsóknaráði Grænlands, Rannsóknamiðstöð Íslands – Rannís og Norðurslóðaneti Íslands. Ráðgert er að um 50-60 þátttakendur verði á vinnustofunni frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Nánari upplýsingar veitir Egill Þór Níelsson, sérfræðingur hjá Rannís.
- Frekari upplýsingar um vinnustofuna (pdf)
- Upplýsingar um samstarf Rannís við Rannsóknaráð Grænlands
- Upplýsingar um samstarf Rannís við Rannsóknaráð Færeyja