Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2024 kl. 15:00.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms á tímabilinu 1. nóvember 2023 til 31. október 2024.
Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2023, kl. 15:00.
Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.
Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna á síðu Vinnustaðanámssjóðs.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir:
Skúli Leifsson, sími 515 5843, netfang: vinnustadanamssjodur@rannis.is