Verið velkomin á vefstofur fyrir umsækjendur um Erasmus+ og European Solidarity Corps í febrúar 2022
Nú hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auglýst eftir umsóknum um styrki í Erasmus+ og European Solidarity Corps fyrir árið 2022. Hér er um ýmis fjölbreytt tækifæri fyrir mennta- og æskulýðsstarf í Evrópu að ræða, og Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi hefur skipulagt röð af vinnustofum fyrir ólíka markhópa sem ætlað er að varpa ljósi á þau.
Vinnustofurnar eru vefstofur sökum aðstæðna og fara fram á Teams. Á þeim veitir starfsfólk Landskrifstofu almennar upplýsingar um þessar tvær áætlanir og nánari upplýsingar um umsóknarfresti nú á fyrri hluta árs. Þetta er kjörinn vettvangur til að fá svör um hvers konar styrkir eru í boði, hvernig sótt er um og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að taka þátt í Erasmus+ og European Solidarity Corps, svo nokkur dæmi séu tekin.
Við hvetjum ykkur til að nýta tækifærið og taka virkan þátt í vefstofunum. Engrar skráningar er þörf.
- Næsti umsóknarfrestur í Erasmus+ nám og þjálfun og European Solidarity Corps er 23. febrúar kl. 11:00.
- Næsti umsóknarfrestur samstarfsverkefna er 23. mars kl. 11:00 og fyrir smærri samstarfsverkefni 4. október kl. 10:00.
Æskulýðsstarf
Vefstofa fyrir samtök og stofnanir sem sinna æskulýðsstarfi
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun, European Solidarity Corps.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 3. feb kl. 11:00-12:00.
- Hvar? Slóð á vefstofu.
Vefstofa fyrir ungt fólk
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun, European Solidarity Corps.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 3. feb kl. 15.00 - 16.00.
- Hvar? Slóð á vefstofu.
Starfsmenntun
Vefstofa fyrir verkefnisstjóra skóla og stofnana sem eru með Erasmus aðild
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 1.feb kl. 14:00 – 14:45.
- Hvar? Slóð á vefstofu
Vefstofa fyrir verkefnisstjóra skóla og stofnana, nýja umsækjendur og reynda sem ætla að sækja um skammtímaverkefni
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 2. feb kl. 14:00 – 14:45.
- Hvar? Slóð á vefstofu
Fullorðinsfræðsla
Vefstofa fyrir fullorðinsfræðsluaðila sem eru með Erasmus aðild og vilja sækja um styrki fyrir námsferðir eða námsdvöl (activities)
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 2. feb kl. 11:00 – 11:45.
- Hvar? Slóð á vefstofu
Vefstofa fyrir fullorðinsfræðsluaðila, nýja umsækjendur og reynda sem vilja sækja um skammtímaverkefni
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 3. feb. kl. 13:00 – 13:45.
- Hvar? Slóð á vef
Leik-, grunn- og framhaldsskólar
Vefstofa fyrir skóla og stofnanir sem hafa fengið staðfesta Erasmus aðild
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 2. feb. kl. 15:00 – 15:45.
- Hvar? Slóð á vefstofu
Vefstofa fyrir aðra skóla og stofnanir
- Verkefnaflokkur: Erasmus+ nám og þjálfun.
- Næsti umsóknarfrestur: 23. febrúar kl. 11:00.
- Hvenær? 3. feb. kl. 14:00 – 14:45.
- Hvar? Slóð á vefstofu
Öll skólastig og æskulýðsmál
Sameiginleg vefstofa um verkefnaflokkinn Erasmus+ samstarfsverkefni
- Næsti umsóknarfrestur: 23. mars kl. 11:00 og fyrir smærri samstarfsverkefni 4. október kl. 10:00.
- Hvenær? 22. feb. kl. 14:00 – 14:45.
- Hvar? Slóð á vefstofu