Velkomin á kynningu á styrkjamöguleikum Nordplus
Þann 9. nóvember nk. kl.17.00 - 19.00 standa Rannís og Norræna húsið fyrir sameiginlegum kynningarfundi á þeim tækifærum sem Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, hefur upp á að bjóða.
Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2023 og því býður Rannís – Rannsóknamiðstöð Íslands sem sér um Nordplus á Íslandi í samstarfi við Norræna húsið til kynningafundar miðvikudaginn þann 9. nóvember.Kynningin verður haldin kl. 17:00-19:00 og kynnt verða öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.Viðburðurinn er opinn öllum en þið megið skrá ykkur hér .
Dagskrá:
- 17:00 – Kynning á Nordplus og undiráætlunum
- 17:30 – Opið fyrir spurningar, spjall og ráðgjöf – starfsfólk Rannís svarar spurningum
- 18:15 – Mikael Lind og Johanna Sjunnesson flytja fallega tóna
- 18:35 – Spjall og léttar veitingar
Smellið hér til að finna facebook síðu viðburðarins
Nánari upplýsingar veitir Eydís Inga Valsdóttir
<eydis.i.valsdottir@rannis.is>