Úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands fyrir árið 2020
Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands hefur lokið úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2020, en umsóknarfrestur rann út 3. apríl síðastliðinn.
Styrkveitingar voru kynntar föstudaginn 19. júní á Björtuloftum í Hörpu, þar sem forsætisráðherra, Katrín Jakbsdóttir, veitti styrkina við formlega athöfn.
Markmið Jafnréttissjóðs er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu, en sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna árið 2015.
Alls bárust 88 umsóknir í sjóðinn. Úthlutað var 92 milljónum króna í styrki til 19 verkefna.
Nafn | Verkefni | Upphæð kr. |
Linda Rós Eðvarðsdóttir | Immigrant Women's Experiences of Employment-Based Violence in Iceland | 9.000.000 |
Háskólinn í Reykjavík | Réttarsalur í sýndarveruleika og áhrif hans á upplifun þolenda kynferðisofbeldis | 9.000.000 |
Hulda Sædís Bryngeirsdóttir | Reynsla íslenskra kvenna af úrvinnslu og leiðum til eflingar eftir kynbundið ofbeldi | 6.000.000 |
Karen Birna Þorvaldsdóttir | Help-seeking for trauma recovery among Icelandic survivors of gender-based violence | 6.000.000 |
Karítas Hrundar Pálsdóttir | Sögur á einföldu máli: Tungumála- og menningarlæsi | 4.000.000 |
Edda Björk Þórðardóttir | Sexual Harassment and Violence in the Work Environment | 9.000.000 |
Norðurslóðanet Íslands | Gender Equality in the Arctic | 9.000.000 |
Jafnréttisnefnd Landspítala | Strákar og hjúkrun - kynning fyrir stráka í 9. bekk grunnskóla | 4.700.000 |
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir | Eru störf kvenna minna virði en karla? - Jafnlaunavottun og launamunur kynja | 6.000.000 |
RIKK - Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum | Fléttur VI: Samtvinnun jafnréttis og loftslagshamfara | 3.900.000 |
Katrín Ólafsdóttir | Vinnum saman: Kynjasamsetning teyma | 1.700.000 |
Ásdís Aðalbjörg Arnalds | Workplaces and parental leave (Vinnustaðir og fæðingarorlof) | 5.100.000 |
Les Fréres Stefsonehf. | Snælda | 700.000 |
Freyja Barkardóttir | Viðspyrna og aðhald: Efnahagsaðgerðir frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum | 4.500.000 |
Kammerhópurinn Reykjavík Barokk | Kona - forntónlistarhátíð: Sjókonur og snillingar | 500.000 |
Chanel Björk Sturludóttir | Hennar rödd - Pallborðsumræður með konum af erlendum uppruna | 2.900.000 |
Björg Hjartardóttir | Róttæk Freyja í Vesturheimi | 300.000 |
Þröstur Olaf Sigurjónsson | Females and a Board Selection Process by Nomination | 1.700.000 |
Þorsteinn V. Einarsson | Karlmennskan | 8.000.000 |
92.000.000 |