Úthlutun úr Íþróttasjóði 2019
Íþróttanefnd bárust alls 109 umsóknir að upphæð rúmlega 93,4 m. kr. um styrki úr Íþróttasjóði vegna ársins 2019.
Alls voru 58 umsóknir um styrki til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana að upphæð um 49 m. kr. Styrkumsóknir um fræðslu- og útbreiðsluverkefni voru 45 að upphæð um 32,6 m. kr. og umsóknir vegna íþróttarannsókna voru 6 að upphæð um 11,7 m. kr.
Til ráðstöfunar á fjárlögum 2018 eru 19,4 m. kr. en samkvæmt reglugerð um Íþróttasjóð þá fara ósóttir styrkir aftur til sjóðsins til úthlutunar. Einnig verður að taka tillit til að kostnaður við rekstur íþróttanefndar og þóknun Rannís vegna umsýslu sjóðsins er tekin af styrkfé sjóðsins.
Íþróttanefnd hefur á fundum sínum
fjallað um innkomnar umsóknir og leggur til í samræmi við reglur Íþróttasjóðs
um úthlutun að eftirtaldir aðilar hljóti styrkveitingar árið 2019 að upphæð 20,1
milljónir úr Íþróttasjóði.*
Aðstaða
Umsækjandi - nafn | Heiti verkefnis | Styrkur í kr. |
Íþróttafélagið Stefnir | Útihreystitæki | 500.000 |
Frjálsíþróttasamband Íslands | Endurnýjun og viðhald á tímatökubúnaði FRÍ | 500.000 |
Ungmennafélagið Sindri - Fimleikadeild | Fjárfesting á púðagryfju | 400.000 |
Golfklúbburinn Mostri | Kaup á brautarsláttuvél | 400.000 |
Golfklúbbur Fjallabyggðar | Kaup á slátturvél | 400.000 |
Golfklúbbur Skagastrandar | Sláttuvél | 400.000 |
Ungmenna-íþróttafélagið Smári | Áhaldakaup | 350.000 |
Golfklúbburinn Dalbúi | Endurnýjun véla | 300.000 |
Ungmennafélagið Kormákur | Kaup á loftdýnu fyrir fimleika | 300.000 |
Skautafélag Rvíkur, íshokkídeild | Endurbætur á búnaði íshokkídeildar | 300.000 |
Hnefaleikasamband Íslands | Kaup vottaðs keppnishrings | 250.000 |
Skotfélag Kópavogs | Kaup á Megalink skotgildrum | 250.000 |
Skautafélagið Björninn, listskautadeild | Snúningsdiskur til skautaæfinga | 250.000 |
Frjálsíþróttadeild Í.R. | Efling ÍR fimleika | 250.000 |
Ungmennafélagið Austri | Bætt Frjálsíþróttaaðstaða | 250.000 |
Skotfélagið Markviss | Kaup á nýum kastvélum fyrir leirdúfur | 200.000 |
Sunddeild Hamars | Bættur aðbúnaður | 200.000 |
Golfklúbbur Selfoss | Æfingarsvæði | 200.000 |
Kraftlyftingadeild Breiðabliks | Endurbætur á gólfi | 200.000 |
Sigurfari-Siglingafélag Akraness | Uppbygging aðstöðu fyrir siglingaskóla barna | 200.000 |
Keilufélag Akraness | Specto | 200.000 |
Skotfélag Akraness | Haglaæfingasvæði | 200.000 |
Skotfélag Akureyrar | Uppbygging aðstöðu í loftgreinum | 200.000 |
Ungmennafélagið Snæfell | Frjálsíþróttadeild | 150.000 |
Golfklúbbur Hveragerðis | Uppbygging á inniaðstöðu til æfinga | 150.000 |
Golfklúbburinn Leynir | Frístundamiðstöð-búnaðarkaup | 150.000 |
Gudrun K Einarsdottir | Kaup á smassvél | 150.000 |
Fimleikadeild Ármanns | Áhöld fyrir parkour þjálfun | 150.000 |
Badmintonfélag Akraness | Ný strengingarvél | 150.000 |
Víkingur, tennisklúbbur | Áhaldakaup | 150.000 |
Taekwondodeild Keflavíkur | 2020 armor brynjur | 100.000 |
Júdódeild UMFN_Glíma | Glímubelti og Glímuskór | 100.000 |
Skotfélag Austurlands - bogfimideild | Búnaðarkaup og endurnýjun | 100.000 |
Íþróttafélagið Ösp | Bocciarenna | 100.000 |
Hestamannafélagið Snæfellingur | Reiðhjálmar í reiðhallir | 100.000 |
Lyftingafélag Austurlands | Efling lyftingastarfs á Austurlandi | 100.000 |
Fimleikafélagið Björk rekstur | Rafbrynjur í Taekwondo | 100.000 |
Ungmennafélag Bolungarvíkur | Styrkur fyrir uppbyggingu kraftlyftingadeildar | 100.000 |
Kraft Mosfellsbæ | Kaup á sérhæfðum lyftingasett fyrir börn og unglinga | 100.000 |
Taekwondodeild Keflavíkur | Búnaður | 100.000 |
Ungmennafélagið Afturelding | Tækjakaup | 100.000 |
Ungmennafélagið Austri | Tækja og boltakaup | 100.000 |
Hnefaleikafélag Akraness | Betri aðstaða fyrir iðkendur | 100.000 |
Frjálsíþróttadeild Tindastóls | Áhaldakaup til afreka | 100.000 |
Ungmennafélagið Austri | Ný æfingaklukka | 100.000 |
Íþróttafélag kvenna | Blaknet og blakboltar | 50.000 |
Júdódeild UMFN | Boltar og þrautadýnur fyrir yngri flokka | 50.000 |
Fræðsla og útbreiðsla
Umsækjandi - nafn | Heiti verkefnis | Styrkur |
Hjólreiðafélag Reykjavíkur | Uppbygging á barna og unglingastarfi | 1.000.000 |
Íþróttafélagið Höttur | Aukið aðgengi barna af erlendum uppruna að íþróttastarfi á Fljótsdalshéraði | 900.000 |
Ungmennafélag Íslands | Vertu með! Aukin þátttaka barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. | 600.000 |
Íþróttafélagið Akur | Bogfimideild Akurs - sérhæfð þjálfun | 500.000 |
Júdódeild Ármanns | Júdó fyrir pólsk börn | 450.000 |
Unglingaráð Körfukn. Tindastóls | Körfuboltaskóli Norðurlands vestra | 450.000 |
Íþróttafélagið Grótta | Opnun Íþróttamiðstöðvar Gróttu fyrir eldriborgurum | 400.000 |
Íþróttabandalag Reykjavíkur | Ráðstefna um íþróttir og ofbeldi | 400.000 |
Ungmennafélag Íslands | Forvarnir unga fólksins | 300.000 |
Knattspyrnuvinafélag Litla Hraun | Knattspyrnuforvörn - Án fordóma | 200.000 |
Fimleikasamband Íslands | Útbreiðsla á landsbyggðinni | 200.000 |
Íþróttafélagið Gerpla | Þjálfaranámskeið og uppbyggingastarf | 200.000 |
Ungmennafélagið Snæfell | Stofnun fimleikadeildar | 150.000 |
Hestamannafélagið Snæfellingur | Reiðnámskeið | 150.000 |
Fimleikasamband Íslands | Parkour | 150.000 |
Ungmennasamband Skagafjarðar - UMSS | Jákvæð samskipti | 150.000 |
Hestamannafélagið Hringur | Hestafjör fyrir alla | 150.000 |
Birna Lárusdóttir | Fjölgun iðkenda af erlendum uppruna | 150.000 |
Íþróttafélagið Gerpla | TUFF | 150.000 |
Frjálsíþróttadeild Tindastóls | Uppbyggingarstarf í frjálsum | 100.000 |
Ungmennafélag Grundarfjarðar | Fyrirlestur um skjáfíkn | 100.000 |
Frjálsíþróttadeild Breiðabliks | Fyrirlestur um íþróttasálfræði og næringarfræði | 50.000 |
Unglingaráð Körfukn. Tindastóls | Körfuboltareglur fyrir iðkendur og foreldra | 50.000 |
Rannsóknir
Umsækjandi - nafn | Heiti verkefnis | Styrkur |
Háskóli Íslands | Heilsuhegðun Ungra Íslendinga - framhaldsumsókn | 1.500.000 |
Sigridur L Gudmundsdottir | Tíðni meiðsla í fimleikum - skimun og eftirfylgni | 1.000.000 |
Lilja Guðmundsdóttir | Þekking og viðhorf til íþróttanæringar hjá íslenskum afreksíþróttamönnum og þjálfurum þeirra | 800.000 |
María Kristín Jónsdóttir | Hormónatruflanir meðal íþróttakvenna eftir heilahristing | 500.000 |
*Birt með fyrirvara um villur.