Úthlutun styrkja til íslenskukennslu fyrir útlendinga 2025

17.2.2025

Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum til íslenskukennslu fyrir útlendinga á árinu 2025. Alls barst 21 umsókn frá fyrirtækjum og stofnunum til þessara verkefna og fengu allar styrk.

Ráðuneytið hækkaði upphæð til úthlutunar um rúmlega 33 m.kr. frá fyrra ári og úthlutaði alls 294,4 m.kr. til íslenskukennslu á árinu. Samtals fengu fyrirtæki og stofnanir styrki til þess að halda 858 námskeið fyrir 10.028 nemendur á árinu 2025 sem er fjölgun frá árinu 2024 þegar styrkt voru 794 námskeið fyrir 9332 nemendur.

Nafn stofnunar

Fjöldi

námsk.

Fjöldinem. Úthlutun kr.
Austurbrú 21 263 8.031.540
Farskólinn – Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra 9 90 3.056.400
Framvegis 6 90 2.547.000
Fræðslumiðstöð Vestfjarða 19 190 6.452.400
Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi 35 437 12.917.828
Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja 9 90 3.056.400
Kópavogsbær 6 72 1.120.680
Landbúnaðarháskóli Íslands 4 40 452.800
Landspítali 6 120 3.056.400
Liberis ehf. 6 60 2.037.600
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum 83 830 28.186.800
Mímir-símenntun 151 1812 51.706.930
Múltikúlti-íslenska 132 1320 44.827.200
Retor sf. Fræðsla 82 1066 32.024.280
Reykjavíkurborg 20 400 950.000
Saga-Akademía 38 380 12.904.800
Samband íslenskra kristniboðsfélaga 14 140 4.754.400
Símenntun á Vesturlandi 15 260 6.961.800
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar 39 436 13.557.964
Tungumálaskólinn ehf. 151 1812 51.706.930
Þekkingarnet Þingeyinga 12 120 4.075.200
858 10.028 294.385.352








Þetta vefsvæði byggir á Eplica