Uppbyggingarsjóður EES í Slóvakíu auglýsir eftir umsóknum
Opnað hefur verið fyrir í flokknum viðskiptaþróun, nýsköpun og lítil og meðalstór fyrirtæki. Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2021.
Markmið áætlunarinnar er að styðja við lítil og meðalstór
fyrirtæki í þróun á nýjum og grænum tæknilausnum; gera núverandi viðskiptaferla
umhverfisvænni og styðja við nýsköpun á sviði velferðartækni og tækni sem
aðstoðar við fólk við að búa sem lengst á eigin heimili.
Heildarfjármagn tilvonandi úthlutunar er 5.415.882 evrur.
Skipting fjármagnsins er eftirfarandi:
- 3.540.000 evrur fyrir græna iðnaðar nýsköpun
- 1.875.822 evrur fyrir velferðartæknilausnir og tæknilausnir sem aðstoðar fólk við að búa sem lengst á eigin heimili og auka lífsgæði þeirra
Hámarksstærð verkefna er 2.000.000 evrur
Lágmarksstærð verkefna er 200.000 evrur
Einnig er í boði smærri ferðastyrkir: Lesa um ferðastyrki
Uppbyggingarsjóði EES er ætlað að styrkja samstarf EES ríkjanna þriggja; Íslands, Liechtenstein og Noregs við 15 móttökuríki.
Bendum á Gagnagrunninn hjá Utanríkisráðuneytinu þar sem áhugasamir um möguleg samstarfsverkefni geta leitað styrkja í Uppbyggingarsjóð EES.
Ef þið/ykkar stofnun/fyrirtæki/félagasamtök hafið áhuga á að bætast við lista áhugasamra samstarfsaðila og setja upplýsingar um ykkur og mögulegar verkefnahugmyndir í grunninn,