Úthlutun styrkja til íslenskukennslu fyrir útlendinga 2021
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum til íslenskukennslu fyrir útlendinga á árinu 2021.
Alls bárust 23 umsóknir frá fyrirtækjum og stofnunum til þessara verkefna og fengu 17 þeirra styrk. Ráðuneytið úthlutaði alls 144,9 m.kr. til íslenskukennslu á árinu. Samtals fengu fyrirtæki og stofnanir styrki til þess að halda 450 námskeið fyrir 5.131 nemanda á árinu 2021.*
Nafn stofnunar |
Fjöldi námskeiða |
Fjöldi nemenda | Úthlutun í kr. |
Austurbrú | 14 | 140 | 4.000.000 |
Betri árangur | 12 | 156 | 4.000.000 |
Farskólinn – Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra | 6 | 60 | 2.100.000 |
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | 17 | 170 | 4.500.000 |
Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi | 28 | 280 | 8.000.000 |
MSS – Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum | 37 | 444 | 12.300.000 |
Mímir-símenntun | 115 | 1.265 | 36.300.000 |
Múltikúlti-íslenska | 33 | 363 | 10.300.000 |
Pareto | 10 | 120 | 3.000.000 |
Retor sf. Fræðsla | 89 | 1.068 | 29.300.000 |
Reykjavíkurborg | 4 | 80 | 3.400.000 |
Saga-Akademía | 20 | 240 | 6.700.000 |
Samband íslenskra kristniboðsfélaga | 4 | 45 | 1.200.000 |
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar | 15 | 180 | 5.000.000 |
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi | 10 | 120 | 3.000.000 |
Tungumálaskólinn ehf. | 24 | 280 | 7.800.000 |
Þekkingarnet Þingeyinga | 15 | 150 | 4.000.000 |
Samtals: | 450 | 5.131 | 144.900.000 |
*Birt með fyrirvara um villur.