Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði

19.4.2024

Askur – mannvirkjarannsóknasjóður og Rannís bjóða til fundar um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði. Fundurinn er 2. maí 2024 frá klukkan 10:00-12:00 í húsakynnum HMS. Einnig er hægt að að fylgjast með fundinum í streymi.

Á fundinum munu sérfræðingar hjá Rannís upplýsa um stærri styrktækifæri sem eru í farveginum í mannvirkjaiðnaði, sóknarstyrki og skattafrádrátt vegna rannsókna og nýsköpunar.

Sérfræðingar í mannvirkjaiðnaði og styrkhafar hjá Aski með þekkingu á stærri styrkumsóknum veita innblástur og innsýn í heim stærri styrktækifæra.

Þorvaldur Birgir Arnarson hlaut árið 2023 stærsta LIFE styrk sem veittur hefur verið undir áætluninni Terraforming LIFE, hann vinnur sömuleiðis að styrkumsókn í mannvirkjaiðnaði hjá Horizon. Hann hlaut hæsta Asks styrkinn í síðustu úthlutun fyrir verkefnið „Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað“.

Hrefna Vignisdóttir sem stýrir rannsóknateymi hjá SINTEF veitir innsýn í evrópustyrki sem hennar teymi hefur fengið undir samstarfsáætluninni DUT – driving urban transtion.

Björn Karlsson sérfræðingur hjá innviðaráðuneytinu segir reynslusögur úr rannsóknarumhverfinu.

Fundinum verður einnig streymt á hms.is/streymi

Skráning á fund

Dagskrá

10:00 Ávarp

  • óstaðfest

10:05 Askur og önnur styrktækifæri

  • Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs

10:10 Horizon Europe. Stórir ESB styrkir með fyrirfram ákveðnum áherslum: New European Bauhaus & Built4People.

  • Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

10.20 DUT: Uppbygging þéttbýla og hverfa til framtíðar – samstarf og styrkir

  • Katrín Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

10:30 DUT (Driving urban transiton) Evrópustyrkir

  • Hrefna Rún Vignisdóttir, leiðir rannsóknateymi hjá SINTEF

10:45 Styrktækifæri – LIFE, EnergyBuilding LCA, BIM

  • Björg María Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

10:55 Styrkhafi Asks og önnur styrktækifæri

  • Þorvaldur Birgir Arnarsson, Rækt ehf.

11:10 Reynslusögur úr rannsóknarumhverfi

  • Björn Karlsson prófessor, sérfræðingur hjá Innviðaráðuneytinu

11:25 Skattafrádráttur vegna nýsköpunar

  • Davíð Lúðvíksson, Rannís

Léttar veitingar og tengslamyndun í lok fundar og fulltrúar Rannís verða á staðnum til að veita frekari upplýsingar í fundarlok.

Frétt á vef HMS
Facebook viðburður









Þetta vefsvæði byggir á Eplica