Smástyrkir fyrir ungt fólk 2023
Er þitt félag eða þinn hópur að hugsa um að halda lítinn viðburð eða framkvæma stutt verkefni í haust? Hvort sem það er gestafyrirlestur, pizzupartý eða pílumót getur þú sótt um allt að 200.000 kr. í styrk!
Landskrifstofa Erasmus+ og Eurodesk á Íslandi mun veita allt að 200.000 kr. styrki til íslenskra samtaka/hópa ungs fólks til að skipuleggja og framkvæma lítil verkefni, fundi eða viðburði. Markmiðið með styrkjunum er að efla ungt fólk og æskulýðsstarf á Íslandi.
Umsóknarfrestur er opinn og hægt er að sækja um styrk til kl. 16:00 þann 1. september og munu niðurstöður liggja fyrir fljótlega eftir frestinn.
Hver geta sótt um?
-
Æskulýðsfélög og önnur félagasamtök
-
Sveitarfélög (félagsmiðstöðvar og ungmennaráð) og aðrir opinberir aðilar
-
Styrkþegar Erasmus+ og European Solidarity Corps
-
Óformlegir hópar ungs fólks (a.m.k. ein manneskja úr hópnum þarf að hafa náð 18 ára aldri)
Þema viðburða þurfa að tengjast einu eða fleiri af eftirfarandi:
-
Lýðræðislegri og/eða borgaralegri þátttöku ungs fólks
-
Inngildingu (e. inclusion) og fjölbreytileika
-
Loftslagsmálum, umhverfisvernd eða sjálfbærni
-
Stafrænum lausnum
-
Líkamlegri og andlegri heilsu
Það er undir ykkur komið hvernig viðburðirnir verða og ekki hika við að vera skapandi og hugmyndarík!
Nánari upplýsingar má finna í skráningarforminu.
Sjá má lista yfir þá smástyrki sem Landskrifstofa veitti árið 2022 hér.