Rannsóknaþing, úthlutun Rannsóknasjóðs og afhending Hvatningarverðlauna 2025

4.12.2024

Rannsóknaþing verður haldið fimmtudaginn 16. janúar 2025 kl. 14.00-16.00 undir yfirskriftinni Hingað og lengra: Vísindi á heimsmælikvarðaÁ þingingu verður tilkynnt um úthlutun Rannsóknasjóðs auk þess sem veitt verða Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs fyrir árið 2025.

  • Rannsoknathing-2025-mynd-med-grein

Á Rannsóknaþingi eru tekin fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar, litið til baka og horft til framtíðar. 

Á hverju þingi er settur skýr fókus á tiltekið umfjöllunarefni og í ár verður sjónum beint að því hvernig Ísland getur stutt sem best við háskóla og rannsóknastofnanir við að sækja og reka alþjóðlega samkeppnisstyrki.

 

 

Dagskrá*

  • Setning Rannsóknaþings
  • Hingað og lengra: Vísindi á heimsmælikvarða
    • Inger Midtkandal, sérfræðingur hjá norska rannsóknaráðinu
      og landstengiliður Horizon Europe í Noregi.

    • David Loic Daniel Reimer, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði-
      og þjóðfræðideild Háskóla Íslands

    • Erna Sif Arnardóttir, dósent við verkfræði- og tölvunarfræðideildir
      Háskólans í Reykjavík

  • Úthlutun Rannsóknasjóðs
  • Afhending Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs


Fundarstjóri: Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.

*Birt með fyrirvara um breytingar.

Að loknu þingi er boðið upp á léttar veitingar.

Öll eru velkomin á Rannsóknaþing en gestir eru þó beðnir um að skrá sig á þingið.

Rannsóknaþing fer að hluta til fram á ensku

Skráning

Einnig verður hægt að fylgjast með Rannsóknaþingi í beinu streymi









Þetta vefsvæði byggir á Eplica