Rannsóknaþing 2024 og afhending Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs
Rannsóknaþing verður haldið fimmtudaginn 18. apríl kl. 14.00-16.00 undir yfirskriftinni Forgangsröðun í rannsóknum. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Þá verða Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs veitt fyrir árin 2023 og 2024.
Á Rannsóknaþingi eru tekin fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar, litið til baka og horft til framtíðar. Á hverju þingi er settur skýr fókus á tiltekið umfjöllunarefni og í ár verður horft til forgangsröðunar í rannsóknum. Rætt verður um áhrifamat á markáætlun um öndvegissetur og rannsóknarklasa auk þess sem rætt verður um framtíðarhorfur í forgangsröðun rannsókna á Íslandi.
Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis opnar þingið og þá mun Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis afhenda Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs fyrir árin 2023 og 2024 í lok þingsins.
Upptaka frá Rannsóknaþingi er aðgengileg hér í spilaranum fyrir neðan.
Dagskrá*
- Setning Rannsóknaþings
-
Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis.
-
- Áhrifamat á markáætlun öndvegissetra og rannsóknaklasa
- Halla Þorsteinsdóttir, aðjúnkt hjá Háskólanum í Torontó, Kanada og forstjóri Small Globe.
- Forgangsröðun í rannsóknum - Pallborð
- Elín Díanna Gunnarsdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri.
- Hans Tómas Björnsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
- Hjalti Páll Ingólfsson, rekstrarstjóri hjá Jarðhitaklasanum Georg.
- Irma Jóhanna Erlingsdóttir, prófessor við mála- og menningardeild Háskóla Íslands og forstöðurmaður GEST / RIKK.
- Kristinn R. Þórisson, prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
- Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis.
Pallborðstjóri: Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna-
og nýsköpunarsviðs Rannís.
- Afhending Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs
- Ingibjörg Gunnarsdóttir, formaður dómnefndar, gerir grein fyrir störfum dómnefndar.
- Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, afhendir verðlaunin.
Fundarstjóri: Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís.
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Að loknu þingi er boðið upp á léttar veitingar.
Öll eru velkomin á Rannsóknaþing en gestir eru þó beðnir um að skrá sig á þingið í meðfylgjandi hlekk.