Orkuskipti - CET samfjármögnun 2023
Auglýst er eftir umsóknum tengdum orkuskiptum. Bendum einnig á margskonar viðburði og fundi tengda kallinu.
Orkuskiptin er mál málanna í dag – ef við ætlum að ná markmiðum okkar í þeim verður að spýta í lófana.
Clean Energy Transistion Partnership áætlunin auglýsir nú í annað sinn eftir umsóknum í verkefni tengd orkuskiptum.
Kallið er 2ja þrepa og að þessu sinni eru tólf umsóknaflokkar (modules) og tekur Ísland þátt í flokkum 4-7.
Verkefni á eftirfarandi sviðum geta sótt um:
- Carbon capture, utilisation, and storage (CCUS) (module 4)
- Hydrogen and renewable fuels (module 5)
- Heating and cooling technologies (module 6)
- Geothermal energy technologies (module 7)
Sjá nánar um kallið á vefsíðu verkefnisins.
Norrænn kynningarfundur:
Í tengslum við undirbúning umsókna verður sameiginlegur Norrænn kynningarfundur miðvikudaginn 23. ágúst frá kl 12:00 – 14:00 að íslenskum tíma.
Nánar upplýsingar og skráning á Norrænan fund
Upplýsingafundur um CETP í Grósku, viðburður haldinn af GEORG og Rannís (léttar veitingar í boði)
Þann 12. september næstkomandi verður haldinn upplýsingafundur í Grósku, áhugasamir eru hvattir til að skrá sig.
Nánari upplýsingar og skráning á fund í Grósku
Upplýsingadagur/tengslaráðstefna:
Þann 13. september næstkomandi verður haldinn upplýsingadagur á netinu sem áhugasamir eru hvattir til að sitja. Nauðsynlegt er að skrá sig.
Nánari upplýsingar og skráning á upplýsingadag
Tímalína kallsins:
Stage 1 Opening: Pre-proposal submission | 20 September 2023 |
Stage 1 Closing: Deadline for Pre-proposal submission | 22 November 2023, 14:00 CET |
Stage 2 Opening: Full Proposal submission | 25 January 2024 |
Stage 2 Closing: Deadline for full proposal submission | 27 March 2024, 14:00 CET |