Nýsköpunarsjóður námsmanna auglýsir eftir umsóknum
Athugið að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 13. febrúar nk. klukkan 15:00. Var áður 6. febrúar 2023 kl 15:00.
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum,
rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og
námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og
þróunarverkefnum.
Styrkir eru veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
Umsóknir um styrki er m.a. metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki.
Umsóknarfrestur er 13. febrúar 2023 kl. 15:00
Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.
Úthlutun mun liggja fyrir mánaðarmótin mars/apríl 2023.
Hverjir geta sótt um?
- Háskólanemar í grunn og meistaranámi.
- Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknar- og/eða þróunarverkefni.
Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn(hja)rannis.is