Nýsköpun og viðskiptaþróun í Grikklandi
Uppbyggingarsjóður EES í Grikklandi auglýsir eftir umsóknum á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar. Umsóknarfrestur er 10. maí nk.
Um er að ræða síðasta áfangann í áætluninni „Business Innovation Greece“ sem miðar að því að þróa og auka samstarf Grikklands við Ísland, Liechtenstein og Noreg en áætlunin leggur áherslu á grænar lausnir, bláa hagkerfið og upplýsingatækni.
Markmið með styrkveitingu er að styðja grísk fyrirtæki og stofnanir til að auka getu sína til viðskiptaþróunar með aðgerðum á borð við vinnustofur, þjálfun, námsferðir, ráðstefnur, greiningarvinnu o.fl.
Umsóknarfrestur: 10. maí 2023 kl. 09:00 að íslenskum tíma (13:00 grískum tíma)
Fjármagn: Heildarfjárhæð styrkja nemur 1,000,000 evrum og geta verkefni hlotið allt að 200,000 evra fjármagn.
Rafrænn fundur um umsóknarferlið verður haldinn þann 15. mars nk. klukkan 10:00 að íslenskum tíma (12:00 á grískum tíma).
Skráning á rafrænan fund
Fyrirkomulag styrkveitingar er þannig að fyrirtæki eða stofnun á Grikklandi sækir um styrkinn en semur við íslenskt fyrirtæki um samvinnu á verkefnatímanum. Íslensk fyrirtæki þurfa því að finna samstarfsaðila á Grikklandi til að eiga kost á þátttöku í verkefninu, en grískir umsóknar aðilar eru sérstaklega er hvattir til samstarfs með aðilum frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi.
Frekari upplýsingar umumsóknarferlið
Frekari upplýsingar um áætlunina
Einnig má hafa samband við Rannís (kolfinna.tomasdottir@rannis.is ) og Heimstorgið ( gunnhildur@islandsstofa.is ).