NordForsk auglýsir kall um ábyrga notkun gervigreindar

18.2.2025

Markmiðið er að kanna notkun, þróun og innleiðingu gervigreindar, á einstaklings-, skipulags- og samfélagsstigi. Umsóknarfrestur rennur út 13. maí 2025 klukkan 11:00 að íslenskum tíma.

Stefnt er að því að fjármagna að lágmarki 12 rannsóknarverkefni sem taka á sameiginlegum norrænum og norrænu-baltneskum samfélagslegum áskorunum í tengslum við víðtæka notkun og innleiðingu gervigreindar á svæðinu.

Samstarfsnetin verða að vera frá að minnsta kosti fjórum Norðurlöndum eða Eystrasaltslöndum, þar af að minnsta kosti þremur norrænum löndum.

Stefnt er að því að halda vefstofu um kallið á næstunni og verður það auglýst þegar nær dregur.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica