Netöryggisstyrkur Eyvarar NCC-IS auglýsir eftir umsóknum

21.8.2024

Styrknum er ætlað að efla netvarnir hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem og opinberum stofnunum í sama stærðarflokki. 

Netöryggisstyrkur Eyvarar NCC-IS auglýsir nú í fyrsta sinn eftir umsóknum.

Hámarksstyrkur er níu milljónir króna og gerð er krafa um 20% mótframlag af hálfu umsækjenda. 

Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2024 klukkan 15:00.

Rannís hefur umsjón með styrknum í samvinnu við Eyvör NCC-IS og sér um yfirferð og mat umsókna. 

Sótt er um í rafrænu umsóknakerfi Rannís - Mínar síður

Nánari upplýsingar:

Netöryggisstyrkur Eyvarar

Kynningarfundur:

Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynningarfundur  fer fram í Fenjamýri Grósku, mánudaginn 26. ágúst 2024 frá klukkan 12:00-13:30.
Á þeim fundi verður kynnt niðurstaða könnunar um áskoranir í netöryggi, sem var framkvæmd fyrr á árinu, ásamt því að farið verður yfir hvernig sækja megi um styrkinn og hvaða verkefni eru styrkhæf.

Skráning á fund í Grósku

logo Eyrvör styrkur









Þetta vefsvæði byggir á Eplica