Listamannalaun 2024
Tilgangur listamannalauna er að efla listsköpun í landinu. Opið er fyrir umsóknir til kl. 15:00, 2. október 2023.
Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 1600 mánaðarlaun, 133,3 árslaun:
- 50 mánuðir úr launasjóði hönnuða, 4,2 árslaun
- 435 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 36,3 árslaun
- 555 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 46 árslaun
- 190 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks, 15,8 árslaun
- 180 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda, 15 árslaun
- 190 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda, 15,8 árslaun
Í umsóknum er óskað eftir:
- Lýsingu á vinnu og listrænu gildi verkefna (50% vægi)
- Ferli umsækjenda (30% vægi)
- Verk- og tímaáætlun (20% vægi)
Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn
skilríki við gerð þeirra. Ef við á þarf að tilgreina umsóknarnúmer samstarfslistamanna
í umsóknum.
Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólks í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjenda.
Á vef listamannalauna er umsóknarform, matskvarði, áherslur stjórnar, lög og reglugerð og leiðbeiningar um gerð umsókna og skýrslna.
Fyrirspurnir skal senda á: listamannalaun@rannis.is