Kynningarfundur um Eurostars-3
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 17. febrúar nk. kl. 9:00-10:00 í húsnæði Rannís, Borgartúni 30 í Hvammi á 3ju hæð.
Eurostars er sameiginleg áætlun Evrópusambandsins og EUREKA Network með það markmið að styðja við nýsköpun.
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum Eurostars verkefna, þ.a.m.:
- lítil og meðalstór fyrirtæki í rannsóknar- og þróunarstarfsemi
- háskólar
- opinberar rannsóknastofnanir
- opinber fyrirtæki
Opið er fyrir umsóknir til 13. apríl 2023 kl. 12:00 að íslenskum tíma (kl. 14:00 CEST).
Umsóknum er skilað rafrænt á vef Eurostars.
Dagskrá:
- Eurostars-3: Innovative SME‘s – Mjöll Waldorff, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís og vara stjórnarnefndarfulltrúi Eurostars á Íslandi (NPC)
- Hvað þarf að hafa í huga við umsókn, ásamt örkynningu á nýja Innowwide – Helga Waage, tæknistjóri Mobilitus ehf. og fulltrúi í Eurostars International Evaluation Panel
- Leit að samstarfsaðila – Katrín Jónsdóttir, sérfræðingur í alþjóðateymi Rannís segir frá þjónustu Enterprise Europe Network við sprotafyrirtæki
Boðið er upp á léttar veitingar.