Íslenskukennsla fyrir útlendinga
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til íslenskukennslu fyrir útlendinga, sem er ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi, fyrir 2025. Umsóknarfrestur rennur út 5. desember 2024 klukkan 15:00
Umsækjendur skulu vera viðurkenndir framhaldsfræðsluaðilar eða hafa undirritaðan samning við viðurkenndan framhaldsfræðsluaðila, um ábyrgð á kennslunni.
Upphæð sjóðsins er samþykkt af Alþingi í fjárlögum fyrir árið 2025.
Upplýsingar um sjóðinn má finna á síðu sjóðsins:
Íslenskukennsla fyrir útlendinga
Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi eigi síðar en 5. desember
2024 kl. 15:00.
Upplýsingar um sjóðinn veitir Skúli Leifsson, sími 515 5843, islenskukennsla.utlendinga@rannis.is
Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá, tækifæri á að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi.