Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2020

8.7.2020

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2020. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 23. ágúst nk.

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi.

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2020. Verðlaunin eru þrjár milljónir króna.

Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu ásamt rökstuðningi þess sem tilnefnir. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi í haust.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 23. ágúst 2020.

Tilnefningum ásamt rökstuðningi og ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is

Fyrri handhafar Hvatningarverðlauna









Þetta vefsvæði byggir á Eplica