Haustfundur Tækniþróunarsjóðs
Haustfundur Tækniþróunarsjóðs verður haldinn mánudaginn 12. desember, kl. 15:00-16:00 í Grósku.
Fundurinn verður í fyrirlestrarsalnum í Grósku og hefst klukkan 15:00 auk þess sem fundurinn verður í beinu streymi.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnar fundinn.
Meðal þess sem verður til umfjöllunar á fundinum er væntanlegt áhrifamat Tækniþróunarsjóðs auk þess sem haustúthlutun úr sjóðnum verður kynnt.
Dagskrá*
- Opnun fundar: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Áhrifamat Tækniþróunarsjóðs: Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís
- Örsaga: Solid Clouds - Stefán Þór Björnsson, fjármálastjóri Solid Clouds
- Örsaga: Sæbýli - Eyjólfur Reynisson, verkefnissjóri
- Haustúthlutun Tækniþróunarsjóðs 2022 - Sigurlína Ingvarsdóttir, fjárfestir, ráðgjafi og stjórnarmaður
Fundarstjóri: Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Rannís
*Birt með fyrirvara um breytingar
Fögnum haustúthlutun og styrkþegum.
Öll velkomin.
Til að auðvelda áætlun á veitingum biðjum við þátttakendur um að skrá sig á fundinn.
Skráðu þig á haustfund Tækniþróunarsjóðs