Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar

10.10.2024

Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH) stendur fyrir "master class" námskeiði fimmtudaginn 24. október næstkomandi klukkan 10:00 - 14:00 í Grósku. Námskeiðið heldur Uffe Bundgaard-Joergensen, framkvæmdastjóri Gate2Growth.

Markmið námskeiðsins er að leiðbeina frumkvöðlum í gegnum lykilþætti í gerð árangursríkrar viðskiptaáætlunar og öflunar fjármagns. Námskeiðið er í umsjá Uffe Bundgaard-Joergensen, sem hefur mikla reynslu á þessu sviði. Á námskeiðinu mun hann deila innsýn sinni í það hvernig á að þróa sannfærandi viðskiptahugmynd, gera árangursríka fjárhagsáætlun og laða að rétta fjárfesta. 

Fjallað verður um hvernig má sameina fjármögnun úr einkageiranum með opinberum styrkjum, með sérstakri áherslu á styrki frá ESB, eins og fjármögnunarleiðir EIC og EU Innovation Fund. Þátttakendur munu læra hvernig hægt er að nýta þessa styrki til að brúa bilið í fjármögnun og auka trúverðugleika gagnvart fjárfestum.

Þátttakendur fá aðgang að sérsniðnu efni, þar á meðal glærum, viðskiptaáætunum og öðru efni frá Gate2Growth í þrjá mánuði. Að auki verða persónulegir ráðgjafatímar með Uffe í boði í byrjun eða lok dags, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að fá einstaklingsbundna endurgjöf.

Viðburðurinn hentar vel fyrir frumkvöðla sem vilja dýpka skilning sinn á fjármögnunarleiðum og öðlast hagnýt verkfæri til að koma viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd.

Vinsamlegast athugið að takmarkað pláss er í boði og því nausðynlegt að skrá sig. Viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer fram á ensku.

Skráning

Frekari upplýsingar um ráðgjafatíma á einstaklingsgrunni (personal) er að vænta fljótlega, en þátttakendur ertu hvattir til að hafa samband við Kolfinnu Tómasdóttur, netfang: kolfinna.tomasdottir@rannis.is til að tryggja sér pláss í slíkan ráðgjafatíma.

Þessi viðburður er haldinn af EDIH á Íslandi (European Digital Innovation Hub) í samstarfi við EEN (Enterprise Europe Network).

English









Þetta vefsvæði byggir á Eplica