Evrópustyrkir í mannvirkjaiðnaði
Askur – mannvirkjarannsóknasjóður og Rannís bjóða til fundar 24. nóvember um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði. Fundurinn er haldinn í húsakynnum HMS og verður hægt að fylgjast með fundinum á Teams.
Á fundinum munu Kolbrún Bjargmundsdóttir og Gyða Einarsdóttir sérfræðingar hjá Rannís upplýsa um styrktækifæri sem eru í farveginum í mannvirkjaiðnaði.
Þær kynna Horizon Europe og Life áætlanirnar sem og Sóknarstyrki sem veittir eru til umsóknarskrifa. Kristján hjá Gerosion sem hefur mikla reynslu af umsóknarskrifum miðlar af reynslubrunni sínum.
Hlekkur á streymi
Facebook síða viðburðar
Markmiðið er að auka hlutdeild styrkfjár til mannvirkjarannsókna hérlendis með samstarfi við Rannís og með reglulegri miðlun upplýsinga um tækifæri sem bjóðast.
Staður: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) Borgartúni 21
Stund: Fimmtudagurinn 24 nóvember, kl. 10-11:15
Dagskrá
Kl. 10:00 - Miðlun til styrkhafa Asks og aðila í mannvirkjaiðnaði um önnur styrktækifæri
Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknarsjóðs hjá HMS
Kl. 10.10 - Árangurssaga um umsóknaþáttöku og afleidd áhrif
Kristján Friðrik Alexandersson hjá Gerosion
Kl. 10.30 - Styrktækifæri og umfang umsókna, Horizon Europe, LIFE og Sóknarstyrkir
Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Gyða Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Kl. 11:00 - Spurningar og umræður
Fundarstjórn
Björn Karlsson prófessor, sérfræðingur hjá Innviðaráðuneytinu er fundarstjóri