European Digital Innovation Hub Iceland (EDIH-IS) hefur starfsemi
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, vísinda, iðnaðar og nýsköpunar opnar formlega Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) þann 2. febrúar næstkomandi kl 9:00 í Grósku Hugmyndahúsi.
European Digital Innovation Hub á Íslandi hefur hafið störf. Miðstöðin mun gegna veigamiklu hlutverki í nýtingu nýjustu stafrænnar tækni á landinu í nánum tengslum við lykilaðila innan Evrópu.
Stofnaðilar miðstöðvarinnar eru Auðna tæknitorg, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Rannís, Origo og Syndis. Saman munu þessir aðilar standa að fjölbreyttum verkefnum, þjónustu og viðburðum næstu þrjú árin hið minnsta.
EDIH-IS er brúin til Evrópu
Mikil áhersla er lögð á að tengja íslenska sprota og starfandi upplýsingafyrirtæki við nýjustu tækni, eins og gervigreind og ofurtölvur með þunga áherslu á öryggismál (Cybersecurity). Miðstöðin er sömuleiðis vettvangur erlends samstarf á sviði stafvæddrar nýsköpunar, þar sem íslenskir aðilar geta nýtt sér tengsl miðstövarinnar við 225 systurmiðstöðvar í Evrópu. Að sama skapi geta þær nýtt sér aðgang að umhverfinu á Íslandi í gegnum EDIH-IS.
Miðstöðin starfar á fjórum megin sviðum;
- Menntun – Stuðlum að aukinni menntun á sviði stafvæðingar t.d. gervigreindar og öryggismála á öllum skólastigum með áherslu á háskólastigið.
- Þróið og prófið – Hjálpum fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi að fóta sig í nýrri tækni með veitingu ráðgjafar, aðgangs að þekkingu og tólum og hýsingu á tilraunaverkefnum.
- Klasi - Samfélag – Setjum upp viðburði og vettvang fyrir samstarf. Miðlum fróðleik og þekkingu frá Evrópu til samfélagsins.
- Fjármögnun – Opnum glugga inn í Digital Europe fjármögnunaráætlun Evrópusambandsins ásamt því að aðstoða við almenna fjármögnun sprota og hugmynda.
Fyrsta verkefni miðstöðvarinnar er að koma á fót meistaranámi í tölvuöryggi í samstarfi Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Fjármögnun þess náms hefur þegar verið tryggð og mun það hefjast haustið 2023.
Sömuleiðis mun verða boðið uppá nám í HR í Digital Transformation, þar sem áhersla er lögð á gervigreind.
Við opnunina munu, auk ráðherra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, rektor Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson og rektor Háskólans í Reyjavík Ragnhildur Helgadóttir ásamt forstjóra Syndis Valdimar Óskarssyni ávarpa samkomuna. Sverrir Geirdal forstöðumaður EDIH-IS fer sömuleiðis yfir verkefni miðstöðvarinnar á næstu misserum. Öll hjartanlega velkomin og er morgunverður í boði frá klukkan 8:30.