Ertu nýliði í Horizon Europe, LIFE eða Digital Europe verkefni?

18.11.2024

Rannís stendur fyrir fundi fyrir nýliða í húsnæði sínu Borgartúni 30 þann 26. nóvember næstkomandi.

Á fundinum verður yfir ýmis atriði tengd þátttöku og utanumhaldi í Horizon Europe, LIFE og Digital Europe verkefnum. Fundurinn er fyrst og fremst fyrir styrkþega.

Fundurinn er einkum hugsaður fyrir nýliða, en öll sem vinna við verkefnastjórnun í Horizon, LIFE og Digital Europe eru velkomin.

Tími: 26. nóvember kl. 10:00-11:00
Staður: Rannís, Borgartúni 30, 3. hæð

Vinsamlega skráið þátttöku:

Skráning









Þetta vefsvæði byggir á Eplica