Efling samstarfs á Íslandi – rafræn vinnustofa
Vinnustofan er tileinkuð umskiptunum: heilbrigðari jarðvegur gegnum lifandi rannsóknarstofur (e. Living Labs). Vinnustofan er 26. maí næstkomandi frá klukkan 09:00-11:00.
Vinnustofan er hluti af jarðvegsleiðangri Evrópusambandsins, “A Soil Deal for Europe”.
Viðburðurinn fjallar um heilbrigðan jarðveg (e. Soil Health Mission) í íslensku samhengi, þar sem leitað er leiða til að stofna rannsóknarstofur um jarðvegsheilbrigði á Íslandi.
Markmið viðburðarins er að styrkja tengslanet þátttakenda og efla innsýn þeirra í möguleika innan lifandi rannsóknarstofa.
Viðburðurinn er skipulagður af NATI00NS og Rannís í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Hólum.
Erindi flytja:
- Professor Anna Gudrun Thorhallsdottir, Cand.agr., MSc., PhD
Grazing ecologist - the role and effect of herbivores in the ecosystem.
Work and study experience from Iceland, Norway, USA and UK.
- Susanne Claudia Möckel
Nýdoktor í landfræði við HÍ.
Rannsóknaáherslur: Áhrif áfoks og gjósku á kolefnisbúskap í mýrum.
Sinnir kennslu í jarðvegsfræði og tengdum fögum við HÍ.