Carbfix hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024

22.10.2024

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024 voru í dag veitt nýsköpunarfyrirtækinu Carbfix sem þróað hefur og markaðssett tækni til að binda koldíoxíð og brennisteinsvetni varanlega í bergi.

  • Carbfix-nyskopunarverdlaun-2024

Kári Helgason, forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar hjá Carbfix, og Ragna Björk Bragadóttir, verkefnastýra styrkverkefna, veittu verðlaununum viðtöku úr hendi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í lok Nýsköpunarþings í Grósku í dag.

Kári sagði m.a. „Verðlaunin eru kærkomin viðurkenning á framlagi allra þeirra sem hafa komið að þróun Carbfix tækninnar gegnum tíðina. Tækifærin til nýsköpunar í loftslagslausnum eru mikil og við höldum áfram að gera okkar tækni skilvirkari og hagkvæmari, til að mynda með því að skipta út ferskvatni fyrir sjó.“

Um verðlaunahafa

Carbfix er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem hefur þróað tækni til að binda koldíoxíð og brennisteinsvetni varanlega í bergi. Markmið Carbfix er að vinna gegn loftslagsbreytingum með því að byggja upp örugga og þrautreynda tækni til að binda koldíoxíð í stein, hér á landi og erlendis. Í yfir áratug hefur verið dælt niður koldíoxíði með tækninni sem hefur fjarlægt næstum 100.000 tonn af koldíoxíði. Í dag starfa ríflega 60 manns af þrettán þjóðernum hjá fyrirtækinu og með samstarfsverkefni í yfir 20 löndum.

Carbfix varð til innan Orkuveitu Reykjavíkur og er afrakstur samstarfs við vísindamenn við Háskóla Íslands, CNRS Touluse í Frakklandi og Columbia háskóla í Bandaríkjunum. Niðurstöður sem sýndu að hægt væri að hraða náttúrulegu ferli með steinrenningu koldíoxíðs í hentugu bergi voru birtar í Science, einu virtasta vísindatímariti heims, árið 2016. Síðan hafa fjölmargir háskólar og rannsóknastofnanir tekið þátt í rannsóknum fyrirtækisins og um það hafa verið birtar yfir hundrað ritrýndar vísindagreinar. Carbfix hefur verið rekið sem sjálfstætt fyrirtæki frá árinu 2020. Árið 2022 hlaut það stærsta Evrópustyrk sem íslenskt fyrirtæki hefur hlotið, úr Nýsköpunarsjóði ESB sem fellur undir Loftslags- og umhverfisstofnun ESB. Tæknin og árangur hennar til kolefnisbindingar hefur verið tekin út og vottuð af óháðum vottunaraðilum. Þá hefur Carbfix prýtt forsíðu National Geographic og fjallað hefur verið um fyrirtækið í 60 Minutes, Netflix og fleiri áhrifamiklum fjölmiðlum.

Rökstuðningur dómnefndar

Heimurinn stendur frammi fyrir hamförum á sviði loftslagsbreytinga af mannavöldum á næstu áratugum og baráttan gegn þeim er eitt stærsta viðfangsefni mannkyns nú um stundir. Samkvæmt Parísarsamkomulaginu frá árinu 2015, sem Ísland er aðili að, er stefnt að því að hitastig á jörðinni árið 2050 verði ekki meira en 1,5°C hærra en það var fyrir iðnbyltingu. Það markmið mun ekki nást án verulegs samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda. Það mun þó ekki duga til eitt og sér og til viðbótar við minni losun þarf að koma til stórfelld og varanleg binding á koldíoxíði úr andrúmsloftinu. Carbfix hefur á skömmum tíma tryggt sér leiðandi stöðu á því sviði á heimsvísu. Verkefnin eru mjög stórhuga og geta náð skala sem gæti skipt máli fyrir heiminn allan. Loftslagsmál eru í eðli sínu alþjóðlegt vandamál sem ekki virðir landamæri og til að ná árangri í baráttunni gegn þeim þarf öflugt alþjóðlegt samstarf. Carbfix á í samstarfi við aðila sem miða að uppbyggingu verkefna sem byggja á tækni fyrirtækisins um allan heim.

Tækni Carbfix hefur þegar staðfest vísindalegt og viðskiptalegt gildi sitt. Fyrirtækið hefur tryggt hugverkaréttindi sín með einkaleyfum og skráningu vörumerkja og er eitt fyrsta íslenska fyrirtækið sem fær einkaleyfi á tækni sem tengist orkugeiranum. Sýnt hefur verið fram á vísindalegt gildi með birtingu tuga ritrýndra vísindagreina í virtum, alþjóðlegum vísindatímaritum. Þá hefur fyrirtækið sannað viðskiptalegt gildi með því að skapa umtalsverðar tekjur með sölu á varanlegri bindingu á koldíoxíði á Hellisheiði, auk þess sem það bindur stóran hluta þess koldíoxíðs og brennisteinsvetnis sem kemur frá Hellisheiðarvirkjun. Unnið er að undirbúningi á niðurdælingu á mun stærri skala í Coda Terminal verkefninu í Straumsvík sem nú er í umhverfismati. Til þess verkefnis hefur fyrirtækið sótt stærsta Evrópustyrk sem nokkurs sinni hefur verið veittur til íslensks fyrirtækis eða um 17 milljarða. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á rannsóknir og þróun og vinnur nú m.a. að rannsóknum á fýsileika þess að nota sjó í stað ferskvatns. Þá hefur fyrirtækið vakið umtalsverða alþjóðlega fjölmiðlaathygli.

Það er mat dómnefndarinnar að Carbfix sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2024.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica