Bláa hagkerfið - auglýsing um nýtt kall á vegum samfjármögnunarinnar SBEP
SBEP – Sustainable Blue Economy Partnership – hefur opnað fyrir nýtt tveggja þrepa kall með umsóknarfresti fyrir for-umsóknir til 10. apríl næstkomandi.
Alls taka 26 lönd þátt í þessu kalli og er framlag Íslands 600.000 evrur þar sem hámark á verkefni er 300.000 evrur. Eins og í fyrsta kallinu þurfa að minnsta kosti að vera þátttakendur frá þremur þátttökulöndum.
Megin sýn þessa samstarfsverkefnis er að stuðla að umbreytingu bláa hagkerfisins yfir í sjálfbært hagkerfi þar sem hafið er grunnþáttur þess. Hér er því um sérstaklega mikilvægan málaflokk fyrir hagkerfi okkar.
Bent er á að af fjórum áherslusviðum tekur Ísland þátt í þremur eða:
- Digital Twins of the Oceans (DTO) at regional sub basin scale
- Blue economy sectors, development of marine multi-use infrastructures
- Blue Bioresources
Þann 15. febrúar 2024 verður haldin almenn vefstofa fyrir áhugasama frá klukkan 13:00-15:30 að íslenskum - nauðsynlegt er að skrá sig:
Hlekkur á vefstofu
Ef þú ert að leita að samstarfsaðila eða verkefni sem þú getur tekið þátt getur þú skráð þig á vefsíðuna: SBEP Partner Search Tool
Allar upplýsingar um kallið er að finna á vefsíðu verkefnisins:
Nánari upplýsingar um kallið veita:
- Sigurður Björnsson – sigurdur.bjornsson@rannis.is
- Katrín Jónsdóttir – katrin.jonsdottir@rannis.is