Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði fyrir styrkárið 2022
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2021, kl. 15:00.
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja.
Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2022 áður en hafist er handa við gerð umsóknar.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Umsóknir og umsóknargögn skulu vera á ensku.
Nánari upplýsingar og aðgangur að rafrænu umsóknarkerfi á vefsíðu Rannsóknasjóðs.