Auglýst eftir umsóknum úr Barnamenningarsjóði
Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.
Verkefni sem stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi.
Áhersla er lögð á samstarf tveggja aðila eða fleiri, svo sem félagasamtaka, skóla, listafólks og menningarstofnana og er hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra aðila.
Ef umsækjandi hefur þegar hlotið styrk úr sjóðnum kemur ný umsókn ekki til álita nema að loka- eða áfangaskýrslu sé skilað fyrir umsóknarfrest.
Umsóknarfrestur rennur út 4. apríl 2025 kl. 15.00.
Reglur sjóðsins, matskvarða og tengil á umsókn er að finna á síðu Barnamenningarsjóðs.
Athugið: Einnig er opið fyrir umsóknir í barnamenningarverkefnið List fyrir alla til 16. mars 2024 . Sjá nánari upplýsingar á vef sjóðsins (ekki umsjá Rannís)