Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna
Hlutverk Þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Umsóknarfrestur rennur út 17. febrúar 2025, kl. 15:00.
Við úthlutun verður tekið tillit til hvort námsefnið styðji við grunnþætti menntunar og hversu aðgengilegt það verður nemendum. Forgangsatriðin í ár eru:
- Námsefni sem styður við endurskoðuð greinarsvið aðalnámskrár grunnskóla
- Námsefni sem hvetur til skapandi kennslu
- Námsefni sem gefið er út á fjölbreyttu formi
- Námsefni sem umsækjendur geta rökstutt að mikill skortur sé á.
Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2025 kl. 15.00.
Umsókn skal skilað á rafrænu formi. Sjá frekari upplýsingar um sjóðinn.