Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

22.8.2024

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er 7. október 2024, kl. 15:00.

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara veitir styrki fyrir:

  1. Skólameistara framhaldsskóla, sem tilnefna einn til tvo kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 300.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið.
    ATH: Breyting hefur verið gerð frá fyrri styrktímabilum. Skólar geta ekki sótt um styrki fyrir gestafyrirlesara. Stjórn sjóðsins ákvað að breyta reglum sjóðsins þannig að gestafyrirlesarastyrkir verða einungis fyrir faggreinafélög.
  2. Faggreinafélög, sem tilnefna einn til tvo stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 300.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 100.000 krónur.

Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2024 – 31. október 2025. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist umsækjanda, þátttakendum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.

Sótt er um rafrænt í umsóknakerfi Rannís.

Eru umsækjendur jafnframt hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins.

Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5843 eða með tölvupósti á netfanginu sef@rannis.is 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica