Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er 5. október 2023, kl. 15:00.
Samstarfsnefndum endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) veitir styrki fyrir:
a. Skólameistara framhaldsskóla, sem tilnefna einn til tvo kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum að hámarki 80.000 krónur.
b. Faggreinafélög, sem tilnefna einn til tvo stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 80.000 krónur.
Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2023 – 31. október 2024. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.
Sótt er um rafrænt í umsóknakerfi Rannís
Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5843 eða með tölvupósti á netfanginu sef@rannis.is