Auglýst eftir umsóknum í tvíhliða norðurslóðaáætlun Íslands og Noregs

27.9.2024

Áætlunin Arctic Research and Studies 2023-2026 veitir sóknarstyrki til að styrkja samstarf á milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða. Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2024, kl. 15:00 UTC.

Sóknarstyrkir eru veittir vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði. Styrkir nema að hámarki 25.000 evrum, þar af að hámarki 10.000 evrur í ferðakostnað, og er styrkhæft tímabil í 17 mánuði frá upphafi verkefnis.

Mögulegt er að nýta styrkinn til undirbúnings umsókna í áætlanir á vegum rannsókna- og nýsköpunaráætlanir Evrópusambandsins, Horizon Europe, og aðrar alþjóðlegar samkeppnisáætlanir á borð við Erasmus+, Nordplus, Uppbyggingarsjóð EES, NordForsk, Nordic Master o.s.frv.

Skilyrði er að a.m.k. einn íslenskur og einn norskur lögaðili (háskóli, rannsóknastofnun, fyrirtæki, sveitafélög eða félagasamtök) komi að umsókn.

Áætlunin byggir á samkomulagi um samstarf á sviði norðurslóðafræða á milli Íslands og Noregs. Utanríkisráðuneyti Noregs og Íslands fjármagna áætlunina en Rannís hefur umsjón með henni í samvinnu við Norwegian Directorate for Higher Education and Skills (HK-DIR) í Noregi.

Nánari upplýsingar um norðurslóðafræði og hvernig sótt er um: Arctic studies

English









Þetta vefsvæði byggir á Eplica