Auglýst eftir umsóknum í Sviðslistasjóð

8.8.2024

Sviðslistaráð auglýsir eftir styrkumsóknum atvinnusviðslistahópa í Sviðslistasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. október 2024 klukkan 15:00.

Umsækjendum er bent á eftirfarandi breytingar:

  • Að öðru jöfnu skulu styrkþegar nýta styrki sína innan 30 mánaða (í stað 18 mánaða áður / 4. og 7. gr í uppfærðum reglum ).
  • Nýr matskvarði : Gildi og mikilvægi verkefnis 50%, framkvæmd verkefnis 25%, sviðslistahópur 25%.

Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað.

Í umsókn Sviðlistasjóðs er hægt að sækja um listamannalaun fyrir meðlimi atvinnusviðslistahópsins.

Á vef Sviðslistasjóðs eru umsóknar- og skýrsluform, matskvarði, lög, reglur og leiðbeiningar um gerð umsókna.

Vefur Sviðslistasjóðs

Umsóknarfrestur er til 1. október 2024 kl. 15:00.
Umsækjendur eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega.

Fyrirspurnir sendist á netfangið: svidslistasjodur@rannis.is 
Einnig er hægt að hringja í síma 515 5839 / 515 5838.

Sviðslistasjóður starfar samkvæmt lögum um sviðslistir 2019 nr. 165. Niðurstaða umsókna liggur að jafnaði fyrir í byrjun árs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica